Nenni þessu rusli ekki lengur

Að vera fimmtugur einstæðingur án hugmyndaflugs er slæmt fyrir mallakútinn. Að grípa það sem er hendi næst og fljóteldað gerir mér ekki gott. SS pylsur úr búð eru drasl. Voru það ekki, en eru það núna. Goði er betri, en bestar eru þær á Bæjarins Bestu.

Allt er orðið svo dýrt að ég neyðist til að græja nestið sjálfur í stað þess að kaupa rándýrar Sómasamlokur. Er haldinn matarást á vinnufélögum mínum sem mæta með girnilega matarafganga að heiman í hádegisverðinn. Hlýt að geta slíkt sjálfur og lækkað matarkostnaðinn umtalsvert.

Og hætta að innbyrða rusl.

Hvíl í friði almenningssamgöngur

Sem farþegi með Strætisvögnum Kópavogs (SVK), Strætisvögnum Reykjavíkur (SVR) og nú Strætó sf., þá er ég svartsýnn á framtíð almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.

90% bílstjóra eru af erlendu bergi brotinn. 80% farþega eru frá öðrum löndum. Ég heyri nær aldrei íslenska tungu mælta á ferðum mínum nema hjá unglingum án bílprófs. Enginn á heyrnartól og allir eru með hátalarann á símanum sínum á hæsta styrk.

Vagnarnir eru úr sér gengnir og enn verri hjá verktökunum. Allt er í biðstöðu eftir hinni svokölluðu Borgarlínu. Miðlægri leið sem þú þarft að þramma langar leiðir til að ná á leið þinni til vinnu.

Borgaryfirvöld og bæjaryfirvöld á höfuðborgarsvæðinu eru að ýta vandanum á undan sér upp brekku í þeirri von að hann leysist af sjálfum sér með aukinni bílaeign og hlaupahjólum.

Og þar sem að neytendurnir eru að meirihluta af erlendu bergi brotnir, þá verður ekkert gert til að bæta almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins.

Fávitar!

Misnotandi mamma fær bætur því Edda Falak lék upptöku af henni í hlaðvarpi sínu að hóta dóttur sinni. Edda gleymdi víst að brengla rödd hennar. Gott og vel. Það er því hægt að græða á að níðast á dóttur sinni. Og láta þann sem tók viðtalið bera kostnaðinn.

Svo lýsandi fyrir íslensk dómsvöld sem hata þolendur en elska gerendur. Sem betur fer hefur Edda Falak safnað nóg fé á netinu til að áfrýja málinu. Fávitar!