Ja, hérna ,hér! Gamla (mamma) hefur lánað mér massa gott reiðhjól svo ég get ekki lengur afsakað mig. Þvílíkt góð líkamsrækt fyrir gildan gosa. Verð að viðurkenna að það tók smá tíma að finna jafnvægið aftur. Kunnáttan gleymist með árunum þrátt fyrir fullyrðingar um annað.
Kemst nú lengri vegalengdir og get skoðað mig um borgina. Þarf ekki lengur að kjaga um sömu sveittu stígana eins og gæs. Hlussast í staðinn um á fáki fráum fram um veg og brenni umhverfisvænasta eldsneyti veraldar; aukakílóum vestræns offitusjúklings.