Viðhorfsbreyting

Veit ekki hvað er að gerast með mig.  Er byrjaður að hjóla allar mínar ferðir og fara í göngutúra þar fyrir utan.  Kominn með ógeð á unnum matvörum og farinn að girnast grænmeti og ávexti; spriklandi fisk úr hafi og ferskar kjúklingabringur.

Drakk vonandi minn síðasta sopa af gervikóla nýlega (Coke light). Bara viðbjóður og vond meðferð á vatni.  Fann hvernig blóðþrýstingurinn jókst ásamt ásókn í sætan mat með hverjum sopa.  Sykur er ekki eina eitrið!

Rétt fyrir fertugt fatta ég djókinn. Að maturinn hennar langömmu henti best ofan í belginn á mér.  Að borða rétt er ekkert dýrara en að versla inn fullt af næringarlausu drasli.  Rétt mataræði krefst smá skynsemi og skipulagningar.  Og járnaga.

Loksins ná orð læknisins til mín.  Loksins geri ég mér grein fyrir alvöru málsins. Rosalega þurfti ég að verða gamall til að öðlast lágmarksþroska.  Má víst telja mig heppinn því sumir eru átján ára til dauðadags.

2 athugasemdir á “Viðhorfsbreyting

  1. Nú fáum við kannski að njóta þín eitthvað fram á elliárin.Flott hjá þér gamli kall

    1. Jamm. Nenni ekki að enda blindur í hjólastól með ónýt nýru fyrir fimmtugt. Vill að minnsta kosti verða sextugur.

Skildu eftir svar við Mummi Hætta við svar