Ha-Joon Chang hagfræðingur og gestur í Silfri Egils kom inn á mínar helstu efasemdir varðandi Evrópusambandið. Þar ríkir engin sameiginleg þjóðarvitund eins og í Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Í Ameríku tekur alríkið á sig verstu höggin sem California þarf að þola. Í Evrópu er Grikkland sett í skammarkrókinn og skikkað til að draga eitt saman seglin. Evrópa verður aldrei Norður-Ameríka. Þar skilja að tvær aldir og tvö stríð. Sagan sjálf.