Mér finnst merkilegt hve karlar hræðast femínista. Kalla þær öfgafemínista í hræðslu sinni. Hæða þær og bölva þeim niður í dýpstu myrkur Helvítis. Eru greinilega í vandræðum með karlmennsku sína og kenna konum um.
Öfgar eru nauðsynlegar þegar kemur að jafnréttismálum. Hver kynslóð neyðist til að berjast fyrir jafnrétti kynjanna. Og kjarnyrt íslenska dugir ein til að ná heyrnum fólks. Feðraveldið er því miður of ríkjandi. Stór hópur karla lítur enn á konur sem hluti og komast upp með það. Því verður að breyta.