Tvær systur reyna að næla sér í smá hluta af drjúgum auði aðals og eru handteknar. Eru aftur teknar höndum fyrir að þiggja bætur fyrir nauðgun frá einhverjum vafasömum gosa með gamalt og virt ættarnafn. Myndi vera tekið svona harkalega á þeim af yfirvöldum og dómstóli götunnar ef þær væru bræður? Konum er refsað verr en körlum fyrir að misstíga sig.
Landið logar í verkföllum og eina sem ríkisstjórnin færir fram er einhver óljós sáttanefnd sem á að leysa málin svo ekki komi til lagasetningar. Í stað þess að taka á vandanum er honum varpað áfram yfir á einhverja aðra ótilgreinda. Lengt í hengingarólinni í stað þess að bara semja og ljúka verkföllunum. – Talandi um verklausa ríkisstjórn!
Dónakallar landsins skjálfa á beinunum vegna Beauty Tips á Facebook. Síðu sem spratt upp úr spurningunni „hefur þú lent í Sveini Andra?“ Lýsingar fórnarlambanna eru orðnar það nákvæmar að nöfn níðinganna eru nánast óþörf. Lesendur kveikja strax á perunni. Skömminni er skilað til heimahúsanna þar sem hún á heima.
Hér hefur dónaskapurinn og níðingshátturinn fengið að þrífast óáreittur áratugum saman undir vernd dómstóla og ráðandi afla = feðraveldisins. Löngu kominn tími til að konur fái að njóta sín án áreitis frá dónalegum körlum með typpin hangandi út um buxnaklaufar.