Ég varð æfur þegar helvítið hann George W. Bush varð forseti Bandaríkjanna. Fékk mína útrás með því að æpa á sjónvarpið og hrista hausinn yfir heimskingjunum handan hafsins. En róaði mig svo með því að svona vitleysa myndi ekki gerast aftur. Viti menn, fíflið var endurkosið. Róaði mig þá með því að aldrei yrðu Kanarnir eins heimskir í þriðja sinn.
Svo kusu þessir þöngulhausar rasista, kvenhatara og almennt svín yfir sig á þriðjudaginn. Undarlegt en satt þá varð mér bara alveg sama. Ég bý ekki í þessu bjánalandi. Verði þeim að góðu! Republikanar geta troðið því í Trumpinn á sér.