Í vanmáttugri tilraun sinni til að milda og vatna út hægrið ætla Vinstri-Grænir í stjórnarsamstarf með bófaflokkunum tveimur. Til að koma í veg fyrir að Simmi Dabbi og flokkur frekjunnar komi ekki að hægrisinnuðustu stjórn í sögu þjóðarinnar.
Sorglegt er að horfa á eftir VG í slíkt hjónaband. Rétt eins og á eftir góðum og heilsteyptum einstaklingi sem ákveður að taka upp samband við helsjúkan alkahólista í von um að hafa áhrif á neyslu viðkomandi. Þetta á ekki eftir að enda vel.
Íhaldið og fjósafasistarnir munu fara sínu fram þrátt fyrir forsæti Kötu litlu og ulla framan í hana þegar hún fer að finna að einhverju sukkinu þeirra.
Ótrúlegt að verið sé að leiða annan Panamaprinsinn aftur til valda og það af vinstriflokki. Djöfull er þetta sjúkt samfélag!