Fyrst kom 15:32 vagninn ekki. Auka 15 mínútu bið eftir 15:47 hvers bílstjóri neitaði að hleypa mér út í Hamraborg svo að ég þurfti að dröslast frá næstu biðstöð í Kópavogsdal upp brekkuna í Hamraborg. Auka 10 mínútur þar og dagurinn ónýtur vegna gremju og hækkaðs blóðþrýstings.
Bara af því að ég sýndi smá kurteisi þegar kona ein setti ferðatösku í veg fyrir mig svo hún gæti hleypt gaurnum sem sat fyrir innan hana út, þá skellir bílstjórinn á mig hurðinni og neitar að hleypa mér út og leggur af stað. Stöðvar strax við hringtorgið/bílstjóraskýlið og öskrar á mig: „þú sitja, þú sitja, annars slys“. Ég hélt nú ekki og bað hann öðru sinni að hleypa mér út því við værum hvort sem er hreyfingarlausir vegna umferðar á hringtorginu. Þá æpir hann: „Þú sitja, annars við ekki fara af stað“.
Engin liðlegheit eða skilningur. Bara valdboð og leiðindi við mig farþegann. Hefði getað verið búinn að hleypa mér út og málið væri dautt. En NEI, betra að vera leiðinlegur við miðaldra Íslendinginn. Kenna honum að hlýða eins og fólk kann sko að gera í útlandinu.
Viðurkenni fúslega að hafa bölvað hátt og hressilega á leið minni aftur í sætið. Þetta er nefnilega í þriðja skiptið sem ég lendi í þessu á einmitt þessari leið, og bara sorrý með mig, alltaf hefur bílstjórinn verið af erlendu bergi brotinn og algjörlega kassalaga í hugsun. Eflaust einhver menningarmunur þar á ferð, en það er alveg sama.
Hvernig væri að slaka aðeins á og gefa farþegum smá séns! Ekkert skrítið að fólk nennir ekki í strætó ef það getur hvorki treyst á að vagninn mæti hvað þá að komast úr honum á sinni biðstöð vegna þess að bílstjórinn er ferkantaðri en andskotinn og illa drukkinn af ímynduðu valdi sínu yfir farþegum.