Verslunarmannahelgarsukkið er að baki. Næst á dagskrá eru hinsegin dagar og fiskidagurinn mikli. Tveir ólíkir atburðir sem ná hámarki sínu næstkomandi laugardag. Gleðigöngu og ofáti á ókeypis fiski og tónleikum.
Loksins fá skuldahalarnir að flykkjast norður á Dalvík í fiskisúpu, fiskrétti og tónleika í boði Samherja sem virðist hættur í fýlu út í þjóð sína. Tjaldsvæðið strax byrjað að fyllast af fólki sem þráir að eyða nóttum í handarkrika næsta manns. Til þess er jú leikurinn gerður. Hlussast saman á sama frímerkið.
Þétt dagskrá gleðidaga verður út vikuna með gleðigöngunni á laugardag. Margt flott stöff í boði fyrir fólk sem er ekki með hausinn sinn kyrfilega fastan upp í rassgatinu á sjálfu sér í fóbíu. Fólk sem styður baráttuna og er ekki skerandi niður regnbogafána af fánastöngum bensínstöðva um miðjar nætur.
Gleðilega hátíð hinsegin fólk og eigendur skuldahala. Vonandi skemmtið þið ykkur vel!