Styttist í daginn…

… þegar appelsínuguli trúðurinn verður kallaður aftur í iður jarðar og þjóðin vestan tjarnarinnar verður frjáls og viðræðuhæf á ný.

… þegar Miðflokkurinn klofnar fyrir næstu kosningar í appelsínugula og fávita en vinna samt stórsigur því fólk er komið með upp í kok af innflytjendum.

… þegar hinir fimm sjálfstæðisflokkar í borginni missa flugið og hrapa vængstífðir í tjörnina.

… þegar kjósendur átta sig á að Borgarlínan er fasteignabrask Sjálfstæðisflokksins.

… þegar ríki Arabíu snúast sameinuð gegn Ísrael og teppaleggja það með sprengjum aftur til steinaldar.

… þegar leiðinlegasti maður landsins fattar að barátta hans gegn búsinu snýst um ritskoðun, bönn og stjórn á lífi annarra, Ekki velferð barna.

… þegar góða fólkið í vesturbænum fattar að flóttafólkið er flutt inn við hlið þess á þeirra reikning því þeim fannst úthverfin ekki nógu flott. Og aka um á mun flottari bílum sem við greiðum fyrir með sköttunum okkar.

… þegar Strætó ehf. verður einkavinavætt dæmi í eigu einhverra Sjálfstæðismanna sem munu rukka sveitarfélögin í rassinn til að halda fargjaldinu á viðráðanlegu verði.

… þegar ég handrota nágranna minn fyrir að standa á öskrum og kalla það söngæfingar.

… þegar ég handrota annan nágranna minn fyrir alla hurðarskellina um daga og nætur.

Færðu inn athugasemd