Allt öðrum að kenna!

Slæddist inn á Borg29 mathöll í gær eftir vinnu og renndi niður ljúffengum borgara og frönskum frá Tasty. Skammt frá mér sat ungur maður grenjandi á trúnó í símann við ölvaða móður sína og ættingja fyrir norðan.

Hafði fallið á edrúmennskunni í gær og verið handtekinn af lögreglunni sem myrti föður hans fyrir sex árum síðan. Sama föður og reyndi að drekkja honum sex ára gömlum. Mamma hans hafði hent honum út tíu ára gömlum. Ættingjar fyrir norðan höfðu reynst honum vel.

Um tíma hafði allt gengið vel. Var orðinn edrú í námi við NTV Promennt. Missti svo flugið þegar kærastan kvaddi í fyrradag. Sat núna og teygði hvern Bolann af fætur öðrum í sveittri mathöll í Borgartúni.

Og allt var öðrum að kenna!

Færðu inn athugasemd