Mjóddin

Kom við í Mjóddinni tvisvar á laugardaginn síðastliðinn. Fyrst á leið minni í Boðaþing til mömmu. Horfði að venju á eftir tvistinum bruna í burtu um leið og ég steig út úr tólfunni.

Þrammaði í Nettó fram að næsta vagni. Týndi til sitthvað fyrir gömlu. Ein af mínum uppáhaldsbúðum. Gott úrval af vörum sem fást varla í öðrum verslunum.

Kom svo aftur við á bakaleiðinni heim. Allt annað andrúmsloft. Erlent vespugengi fyrir utan og sitjandi gengi fyrir innan. Sveigði vel framhjá báðum gengjum minnugur frétta um árásir þeirra.

Hoppaði upp í fjarkann í gegnum Kópavog í stað þess að bíða lengur eftir tólfunni. Þori ekki að hanga þarna of lengi eftir að göngugatan lokar.

Færðu inn athugasemd