Frábær gleðiganga en af hverju var þar fánaborg Palestínu hrópandi óatkvæðisorð að Ísrael? Eins og að réttindi samkynhneigðra séu eitthvert forgangsatriði hjá múslimum. Nokkuð viss um að réttindi þeirra séu meira virt hjá gyðingum.
Einhverjir múslimar á Ein með öllu óku um með leikfangavélbyssur út um gluggann og héldu að þeir væru fyndnir…eða ekki. Kannski vildu þeir bara ógna og vekja ótta. Sérsveitin skarst í leikinn.
Skátum frá Qatar var vísað af skátamóti fyrir norðan fyrir yfirgengilega áreitni í garð stúlkna á mótinu. Fengu viðvörun en létu sér ekki segjast svo lögregla og barnaverndaryfirvöld gengu í málið.
Við nennum þessu ekki og erum ekkert að fara lúffa fyrir svona leiðindum. Miðaldra konur í vesturbænum verða bara að finna sér annað áhugamál.