Hvað með börnin!

Alltaf sami söngurinn. Hvað með börnin sem hafa fyrir löngu síðan tekið fram úr fornaldar foreldrum sínum á netinu. Panta hvað sem þau vilja með nokkrum fingrasmellum á snjallsímann sinn sem þau fengu í fermingargjöf án þess að gamla settið verði þess vör.

Á meðan er gamla gengið í einhverjum samtökum foreldra gegn áfengisauglýsingum að berjast gegn netsölu á áfengi. Ljúgandi því að þar sé hægt að panta áfengi án rafrænna skilríkja. Ef svo er þá er það bara sama dæmið og þegar maður hékk fyrir utan ríkið og grátbað einhvern fullorðinn um að kaupa fyrir sig gegn smá þóknun.

Aðgengi, okurverð og skattar hafa ekkert að segja um hvort að fólk drekki sig fullt um helgar. Það gerir það bara samt með þyngri hausverk og léttara veski. Á meðan makar ríkissjóður krókinn. Sérstaklega með meiri sölu eins og nú er í gangi. Ríkið vill ekkert verða af frekari skatttekjum af áfengissölu og er því ekkert um að elta uppi netsala.

Þess vegna dregur lögreglan og saksóknarar lappirnar. Til hvers að drepa mjólkurkú sem bara fitnar og fitnar.

Færðu inn athugasemd