Eftir langt hlé

Hef ekki nennt að stinga niður penna síðastliðnar vikur. Hvorki haft löngun né vilja frá því mamma kvaddi þessa jarðvist og hélt út á veiðilendurnar miklu.

Taldi mig vera tilbúinn eftir fráfall pabba fyrir sex árum síðan, en nei. Bylmingshögg í magann svo ég missti andann og féll niður á hné hágrátandi eins og ungabarn. Jafnvel þó hafi verið ljóst í hvað stefndi síðastliðin þrjú ár.

Mamma hefur heimsótt mig af og til í draumum síðan þá. Minnt á sig. En alltaf á góðan máta.

Fann frétt í handritum RÚV um fyrsta umsjónarmann fasteigna Austurbæjarskóla sem var að fara á eftirlaun 1958 eftir 28 ára starf. Tilvalið til að spyrja mömmu um í næstu heimsókn sem fyrrverandi nemanda. Svo kom höggið. Hallaði dyrunum að skrifstofunni og sat hljóður um langa stund og barðist við grátinn.

Hvíl í friði gamla! Sjáumst í næsta stríði.

Færðu inn athugasemd