Lausleg þýðing úr forngrísku: Ég hef fundið lausnina!
Fyrr í dag skíthræddur í hverju skrefi á blautum gangstéttum við það að detta í öðru hverju spori gerði ég uppgötvun.
Með poka í hægri og staf í þeirri vinstri setti ég hann fyrir aftan mig eins og skíðastaf og eureka! Fylltist sjálfstrausti og arkaði heim eins og herforingi óhræddur við vegalengdina sem beið mín.
Hef verið hræddur við að detta fram fyrir mig þegar hættan var fyrir aftan mig. Göngustafir eru næstir á innkaupalistanum.