Fávitar!

Misnotandi mamma fær bætur því Edda Falak lék upptöku af henni í hlaðvarpi sínu að hóta dóttur sinni. Edda gleymdi víst að brengla rödd hennar. Gott og vel. Það er því hægt að græða á að níðast á dóttur sinni. Og láta þann sem tók viðtalið bera kostnaðinn.

Svo lýsandi fyrir íslensk dómsvöld sem hata þolendur en elska gerendur. Sem betur fer hefur Edda Falak safnað nóg fé á netinu til að áfrýja málinu. Fávitar!

Erum við eitt af suðurríkjum Bandaríkjanna?

Hugsið ykkur! Karlar voru meirihluti grunnskólakennara um miðja síðustu öld og höguðu sér eins og þeim sýndist sbr. Skeggi Ásbjarnarson við Laugarnesskóla. Og héldu hlífiskyldi yfir hver öðrum og misnotkun sinni gagnvart ungum nemendum sínum frá brotnum heimilum. Eins og þessi börn hafi ekki þolað nóg fyrir heima hjá sér.

Fátt hefur breyst þrátt fyrir opnun umræðunnar, #metoo og fleiri byltingar. Feðraveldið berst með kjafti og klóm gegn því að missa stjórn sína á hve langt niður þeir mega ríða niður fyrir sig. Að Ingó reðurguð og vinur hans í Vefjunni fái áfram óhindrað að herja á stúlkur í gaggó.

Af hverju er ekki búið að samræma allt í 18 ára aldur? Fjárráð, kynráð, kosningarétt, ökurétt, giftingu og barneign? Af hverju er miðaldra mönnum enn leyft að komast upp með að riðlast á 15 – 17 ára börnum án nokkurra afleiðinga? Erum við eitt af suðurríkjum Bandaríkjanna?

Kalt, dimmt og leiðinlegt

Veit ekki. En mér virðist sem að um leið og ég flyt úr hverfi, þá spretti þar upp áhugaverðir veitingastaðir, verslanir og bakarí. Og um leið og ég flyt í hverfi, þá hverfi þaðan margt gott eins og Vínbúðin í Borgartúni og Subway á N1. Krónan kom að vísu í staðinn sem sárabætur.

Ísland er svolítið þannig. Veldur manni vonbrigðum dag hvern í smáskömmtum. Svona eins og úrvalið af kjúklingapylsum sem er sorglegt miðað við önnur lönd. Fyrir nokkrum árum seldi Krónan fínar kjúklingapylsur frá einhverjum aðila hvers nafn ég man ekki lengur, en hætti því svo. Rétt eins og sænsku pylsurnar frá SS sem var skipt út fyrir einhverjar danskar pylsur sem enginn nennir að éta. Af hverju þarf allt gott að hætta í sölu? Hatið þið neytendur!

Hingað svindlar sér enginn nema fyrir algjöra neyð. Hér er kalt, dimmt og leiðinlegt samkvæmt Júlíu Margréti Einarsdóttur rithöfundi. Og það er svo sannarlega rétt hjá henni. Volað land fullt af leiðindapúkum sem virðast staðránir í að gera þennan klett enn leiðinlegri með frekari boðum og bönnum.

Eins og þessir hipp og kúl Framsóknarunglingar sem vilja veita ÁTVR „heimild“ til að hafa opið á sunnudögum til að vega á móti öllum netverslunum með áfengi sem hafa sprottið upp. En alls ekki leyfa áfengi í búðir utan Vínbúða ríkisins. Fokkið ykkur fjósafasistakálfarnir ykkar! Lokið þessari risaeðlu!