Hatrið sigraði

Að komast í lokakeppnina og ná tíunda sæti er býsna góður árangur. Eitthvað sem jarmið hans Friðriks Ómars hefði aldrei meikað.

Enn betra að sýna borða með fána Palenstínu þegar linsan lendir á þeim í kjölfar stigagjafar almennings. Svo kom einhver arabískur öryggisvörður og hirti af þeim borðann. Aldrei má ekki neitt.

Verður bara fínt ef refsingin frá þessum asnalega Jon Ola Sand verður að meina Íslandi þátttöku að ári. Sparar RÚV böns of monní. Og er vel þess virði.

Það þaggar enginn niður í Íslendingum.

Þungunarrof

Af hverju eru karlkyns þingmenn að fjalla um þungunarrof eins og það komi þeim eitthvað við? Af hverju eru afturhaldskurfar eins og Ásmundur Friðriksson og Birgir Þórarinsson að tjá sig um líkama kvenna? Veifandi barnatrú sinni og Biblíunni. Miðaldra karlar með enga vitneskju um meðgöngu og barneignir. Um svona mál ættu bara konur að fá að kjósa!

Íþyngjandi

Nú er víst orðið íþyngjandi að fá refsingu fyrir að stela frá fólki. Ekki má svipta bílaleigur starfsleyfi fyrir að eiga við kílómetramæla bifreiða fyrir sölu þeirra.

Að sama skapi má ekki hrófla við tveimur fyrrverandi lögreglumönnum fyrir að þykjast vera lögreglumenn á fundi um þriðja orkupakkann. Að vísu voru þeir merktir Sjálfstæðisflokknum og fá því frítt spil.

Eitthvað segir mér að eigandi bílaleigunnar sé einnig innvígður og innmúraður. Það gilda víst einhver önnur lög um einstaklinga í téðum flokki. Eða réttara sagt engin lög.