Beint lýðræði

Fólk í stjórnmálum lærir fljótt að sum mál má aldrei leysa til fulls því þá nennir enginn lengur að kjósa þau til góðra verka.

Ellilífeyris – og örorkubætur mega aldrei ná vísitöluhækkun launa.  Tollfrelsi má aldrei ganga í gegn.  Vín í búðir má aldrei leyfa.  Vextir mega aldrei lækka um of.  Húsnæði verður að vera dýrt og nær ófáanlegt.

Fólk má ekki hafa það of gott.  Annars nennir enginn að kjósa stjórnmálafólk út á loforðin þeirra.

Í tæknivæddu og upplýstu samfélagi á fulltrúalýðræði spilltra stjórnmálakatta ekki lengur rétt á sér.  Við getum rétt eins kosið á milli málefna með morgunkaffinu í gegnum spjaldtölvuna.

Alveg eins við eins og 63 þingmenn og konur sem kjósa hvort sem er eftir flokkslínum, sannfæringu eða tilfinningu.

Næturvakt Rásar 2

Hef verið að reyna að rifja upp hvenær ég hóf að hafa opið fyrir næturvaktina um helgar.  Sennilega fyrir fimmtán árum síðan þegar reglulegt djamm um helgar niður í miðbæ datt niður vegna þess að vinir mínir og drykkjufélagar hófu sambúð og byrjuðu að fjölga sér.

Fékk smá saman leið á að vafra einn niður í bæ eins og illa gerður hlutur.  Fór frekar að hanga heima á netinu með einn kaldann á kantinum.  Hlusta á næturvakt rásar tvö með Guðna Má Henningssyni.  Ekki er öllum gefið að tala við einmana sálir næturinnar sem margar hverjar hafa áfengi um hönd.  Guðni er þar fremstur meðal jafningja.

En nú er hann að hætta og aðeins ein vakt eftir um næstu helgi.  Flytur af landi brott.  Fer á eftirlaun.  Hvað gerum við vesælar sálir næturinnar?  Hver á að vagga okkur í svefn?

Einhver mun vonandi taka við.  Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða Hellvar í Unun) hefur stundum leyst Guðna af með góðum árangri.  Nærtækast væri að leita til hennar. Hún er gædd sömu gáfu og Guðni.

Vonandi leggst næturvaktin ekki af eins og var planið fyrir nokkrum árum síðan en hætt var við vegna mótmæla hlustenda.  Við vesalingarnir þurfum á einhverjum að halda inn í nóttina um helgar.  Eyra til að  hlýða á óskalög okkar.

 

Arnþrúður er full

Pétur Gunnlaugsson fékk víst æðiskast á Útvarp Sögu eftir að hafa heyrt pönklag Austurvígstöðvanna um útvarpsstjórann og stöðina.  Virðist ekki skilja að pönk snýst um að stinga á kýlum með látum.  Hreyfa við fólki og fá það til að hugsa fyrir utan snjallsímann sinn.

Útvarp Satan getur ekkert neitað því að vera endurvarp fyrir rasisma og hvers kyns hatur út á öldur ljósvakans.  Þarna hringja inn einstaklingar með hjörtun full af heift og æla út úr sér alls kyns eitri um náungann meðan Pétur hjalar bara „já, já“ á móti.

Varla skrítið þó textahöfundur hljómsveitarinnar og klerkur út í bæ hnýti aðeins í Söguparið sem þrífst á eldri borgurum, öryrkjum og andlega veiku fólki.  Sem styður Miðflokkinn, Trump og Pútín.

Enginn er neyddur til að hlusta en rosalega er það mannskemmandi þegar maður villist inn á þetta ræsi íslenskrar útvarpsmennsku.  Markús Þórhallsson er þar undanskilinn og eini maðurinn með viti á þessari rás.

Davíð Þór Jónsson er eins og hann er.  Hefur lítið breyst þó að hann hafi losað sig við Bakkus.  Kannski þess vegna finnst honum fáranlegt að Arnþrúður sé full í símatímanum.