Hrakhólar

Á Íslandi er bara byggt lúxushúsnæði með lyftum og bílakjöllurum niður til helvítis.  Rándýr steypa sem fáir hafa efni á að kaupa.  Og helst engar stúdíó eða tveggja herbergja íbúðir sem markaðurinn þarfnast svo mjög.  Ef slíkar eignir birtast, þá eru þær svo stórar í fermetrum að fáir í leit að fyrstu eign geta keypt þær.

Ofan á allt er að myndast millistétt lágtekjufólks sem hefur rétt svo fallið út fyrir lágmarksviðmið bæjarfélaga til að eiga rétt á félagslegri leiguíbúð.  Sama fólk mun ekki fá inni hjá Bjargi fé­lagi, ASÍ og BSRB, sem miðar við sama tekjuviðmið.  Fátt vinnandi fólk er með svona lág laun.  Væntanleg leiguheimili Íbúðalánasjóðs verða aðeins fyrir fólk með börn.  Barnlausir einstaklingar geta étið það sem úti frýs.

Ekkert er í kortunum fyrir einstaklinga sem rétt falla út fyrir tekjumörk og geta ekki heldur leigt eða keypt á almennum markaði.  Þeir eiga bara að hýrast í herbergjum í iðnaðarhúsnæðum og deila salerni og eldhúsi með farandverkamönnum frá Austur-Evrópu.  Og skammast sín fyrir að hafa ekki fjölgað sér.

Það voru þvílík mistök að leggja niður verkamannabústaðina:  „Ætla má að ríflega 13 þúsund íbúðir hafi verið í verkamannabústaðakerfinu þegar það var lagt af og þeim sem þar bjuggu gefin kostur á að kaupa íbúðirnar með láni á markaðskjörum. Þegar í byrjun lenti þorri kaupenda í vanda með greiðslubyrði þessara lána – þrátt fyrir að hafa fengið að eignast verulegan eignarhlut“ – sagði Gylfi Arnbjörnsson í 1. maí ávarpi sínu í fyrra.

Og Gylfi bætti við:  „…að ef verkamannabústaðakerfið hefði fengið að þróast áfram í friði fyrir pólitískri þröngsýni hægri aflanna væru um 20 þúsund íbúðir í þessu kerfi í dag og aðstæður bæði tekjulægri fjölskyldna og ungs fólks allt aðrar og betri. Nú er svo komið að ungt fólk sem ekki hefur sterkt fjárhagslegt bakland á litla sem enga möguleika á að hefja búskap. Tekjulágar fjölskyldur þurfa að nota allt að helmingi tekna sinna til að greiða leigu og búa samt við mjög mikið húsnæðisóöryggi.“

Þetta annars fína kerfi var fyrir hægra liðinu sem vill einkavinavæða allt.  Leigufélög sem sýna methagnað hafa sprottið upp og maka krókinn á ódýrum eignum frá Íbúðalánasjóði.  Íbúðum sem sjóðurinn hafði tekið til sín í kjölfar hrunsins og selt í bunkum til Almenna leigufélagsins og Heimavalla.  Þegar hið rétta hefði verið að stofna leigufélag án hagnaðarsjónarmiða.  Nokkurs konar verkamannabústaðaleigufélag fyrir tekjulága og þá sem falla á milli skers og báru þegar kemur að tekjuviðmiði bæjarfélaga og væntanlegra leigufélaga verkalýðsfélaga og Íbúðalánasjóðs.

En það má ekki.  Garðbæingar verða að græða á daginn og grilla á kvöldin.  Húsnæðisleysi og eymd samborgara þeirra kemur þeim ekki við.  Einhver þarf að halda uppi lifistandard Engeyinga og annarra innvinklaðra og innmúraðra í flokknum.

Forneskja

Hverskonar vangefni er það að skera forhúðina af litlum drengjum og kalla það trúarhefð sem má ekki láta af?  Hvers vegna er trúað fólk að fokka í sköpunarverki Guðs síns?  Kvelja litla drengi og limlesta þá fyrir lífstíð?

Og hvers vegna er fólk á Íslandi að verja þennan óskapnað með kjafti og klóm?  Biskupinn, Kári Stefánsson, Óttar Guðmundsson og fleira fólk.  Eins og það sé sjálfsagt mál og algjört þarfaþing að bera skurðarhníf að allra heilagasta hluta sveinbarna í nafni trúar og hefða.  Að ekki megi gera gyðinga og múslima að glæpamönnum.  Hvað þá bandarísku þjóðina.

Þetta er enn ein forneskjan úr Biblíunni sem við eigum að afneita.  Við grýtum ekki lengur fólk eða heimtum að konur þegi í hofum og séu undirgefnar mönnum sínum.  Best væri að við hættum alveg að trúa á ímyndaða gaura á himnum ofan sem eiga að hafa skapað okkur í einhverju blackouti fyrir ótal öldum síðan.

Ímyndaðir vinir umskorinna karla eru helsta ástæðan fyrir stríðum jarðkringlunnar frá lokum seinni heimsstyrjaldar.  Höldum forhúðinni.  Njótum ástar og höfnum stríði!

Smá röfl

Hef ekki krotað á þennan vegg í hartnær tvo mánuði.  Fyrir utan að finnast ég ekki hafa neitt merkilegt að segja, þá hef ég verið hálf andlaus það sem er af þessum vetri.  Fátt sem grípur mig.  Nenni ekki lengur að nöldra yfir spilltum stjórnmálum og fáranlegu samferðarfólki.  Enda tilgangslaust í bananalýðveldi eins og Íslandi.

Hér rífst fólk út af borgarlínu og umskurði drengja í stað alvarlegs húsnæðisskorts og slæmum kjörum þeirra sem minnst mega sín.  Gjörsamlega tilgangslaust röfl.

Borgarlínan fer aldrei á koppinn því hún er allt of dýr og óhentug fyrir fámenna þjóð sem hatar almenningssamgöngur.  Og að mæla með umskurði vegna trúar, hefða eða hreinlætis er fáranlegt.  Forhúð er ekki botnlangi.  Hún er hvorki óþörf eða til vansa fyrir drengi.  Undarleg þessi árátta að vilja eiga við heilugustu hluta ungbarna.  Látið sköpunarverkið vera!

Línur eru farnar að skýrast fyrir borgarstjórnarkosningarnar.  Vigdís Hauksdóttir hefur skotið upp kollinum sem oddviti Miðflokksins.  Hélt að hún væri hætt.  Vinkona flugvallarvina mætt galvösk á völlinn með Simma Dabba og Útvarp Sögu á bak við sig.  Eyþór Arnalds ljósastaurabani hjá íhaldinu.  Nýr meirihluti að myndast?

Skrímsli sem hefur unnið með börnum til tuttugu ára er hnepptur í gæsluvarðhald fyrir misnotkun á skjólstæðingum sínum og ættingjum.  Enginn gerði neitt þótt hafi verið tilkynnt um hann 2002, 2010 og 2013.  Suss!  Segjum engum frá.  Maðurinn er bara svona gerður.  Börnin þurfa bara að passa sig á að setjast ekki í kjöltuna á honum.

Framámaður í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi er tekinn fyrir að dópa unglingspilta og misnota.  Ekkert var gert.  Lögreglan stöðvaði manninn með pilt út úr heiminum en gerði ekkert því hann var orðinn sjálfráða.  Enn einn innmúraður sem fær að stunda sína glæpi óáreittur.  Fær sennilega uppreist æru eftir dóminn með meðmælum frá flokksmönnum.

Þessi hræðsla, aðdáun eða lotning fyrir nauðgurum og barnaníðingum á Íslandi er stórundarleg.  Fólk virðist kóa með þeim í hópum og leyfa að stunda sína viðbjóðslegu iðju undir þagnarskyldi þegar það ætti að króa þá af og berja til óbóta.  Ekki eins og þetta sé kækur en ekki glæpur.

Ásmundur Friðriksson þingmaður hefur sett Íslandsmet ef ekki heimsmet í akstri um kjördæmi sitt á síðasta ári.  Fékk fjórar milljónir og sexhundruð þúsund fyrir.  Tæp fjögur hundruð þúsund á mánuði gegn akstursbók.  Sem ætti að vera auðvelt að bera saman við kílómetramæli jeppans hans.  Reyndar er hægur leikur að breyta mælum ef brotaviljinn er fyrir hendi og einbeittur.  Mæli samt með því að skrifstofa Alþingis skoði mælaborðið á kerrunni hans.  Staðfesti þessa metkeyrslu.  Annars skil ég ekki af hverju þessi maður er á þingi?  Rasisti og karlremba.  Algjör sóun á rými og atkvæðum.

Fólk býr ekki í húsum sem eru í hönnun er alveg rétt hjá verðandi borgarstjóra Eyþóri Arnalds.  Hér vantar 17.000 íbúðir á næstu tveimur árum til að halda í við fólksfjölgun og vinna á uppsöfnuðum vanda.  Þétting byggðar tekur allt of langan tíma.  Allt of lítið er í gangi á höfuðborgarsvæðinu.  Hótel teljast ekki með.  Treysti reyndar hvorki Eyþóri eða Degi yfir götu.  Eru báðir froðusnakkar sem eru allt of ástfangnir af sjálfum sér.

Aðeins meira röfl en ekkert.  Hafði greinilega eitthvað að segja.  Fínt að koma þessu af sér.  Gott fyrir sálina.