Hvað er svona merkilegt?

Dröslaðist loksins í Costco í gærmorgun.  Fékk mynd af mér prentaða á kortið mitt.  Skreiddist inn með allt of stóra kerru.  Leit augum dýrðina … sem var svo nákvæmlega engin.

Skil ekki af hverju hafa verið stofnaðar að minnsta kosti þrjár fésbókarsíður til heiðurs þessari ensku sjoppu.  Þetta er langt í frá bandarísk búð.  Breskur gaur sem talaði ensku sem ég skyldi ekki sat fyrir mér við útganginn og heimtaði kortið mitt og strimilinn.  Leið eins og ég væri staddur í Þriðja Ríki Hitlers og alls ekki velkominn aftur.  Að vísu var afgreiðslumaðurinn og konan sem raðaði vörunum aftur í kerruna mjög vingjarnleg og ég þakkaði þeim sérstaklega fyrir.

Fann fátt sem mig vantaði eða langaði í nema kannski makkarónu- og ostarétt sem smakkaðist reyndar vel.  Þarna er allt í ofurstærð.  Fínt fyrir stórar fjölskyldur og veislur en hentar mér frekar illa þar sem ég er einstæðingur og á enga frystikistu.

Á ekki erfitt með að trúa frétt DV þar sem fyrrverandi starfsmaður lýsir gengdarlausri sóun og slæmri umhverfisstefnu þar sem öllu er hent í sama gáminn lítið skemmdu og varla komið á síðasta söludag.

Efast stórlega um að ég nenni að versla þarna aftur.  Kannski kom ég of seint á staðinn og varð ekki vitni að öllum ódýru verðunum sem birtust í vor.  Þau eru að minnsta kosti horfin núna.  Verður samt ekki af Costco tekið að hafa lækkað verð og aukið samkeppni. Kveikt elda samkeppni sem var varla til áður.  Hvort það ástand mun endast á eftir að koma í ljós.

Hef aldrei komið inn í bandaríska Costco, en einhverra hluta vegna trúi ég að hún sé mun betri en sú breska, síður sjoppulegri og með betra úrval og verð.  Og fólk við útganginn sem kann skiljanlegri ensku.

Brunaði í nýuppgerða Bónus á Smáratorgi á heimleiðinni.  Gladdi mig mun meira heldur en Costco.  Búið að snúa henni við og stækka.  Vel úthugsuð með þarfir viðskiptavina í huga.  Gott ef sum verðin hafa ekki lækkað smá.  Held áfram að fara þangað í framtíðinni.

Teflon

Teflon Bjarni Ben er mættur í fjölmiðla og bendir í allar áttir.  Fullyrðir að hann hafi ekki gert neitt rangt og hafi alls ekki búið yfir neinum innherjaupplýsingum fyrir fall Glitnisbanka.  Sem er náttúrulega lygi.

Er ekki kominn tími á þennan gaur!

Betur má ef duga skal

Bjarg almennt leigufélag BSRB og ASÍ er fínt framtak sem mun koma lágtekjufólki til hjálpar í húsnæðisleit sinni.  Hið skrítna er að félagið þykist einnig ætla að leysa húsnæðisvanda millitekjufólks en setur svo tekjumarkið jafnlágt og velferðarsvið bæjanna.  Maður þarf því að vera öryrki, á mjög lágum launum eða atvinnulaus til að vera undir þeim og eiga rétt á íbúð.

Samfylkingin syngur blessunarlega svipaðan söng fyrir kosningarnar um almenn leigufélög að norrænni fyrirmynd.  Einhvern veginn grunar mig þó að tekjumarkið sé aðeins hærra hjá frændþjóðum okkar.  Hugmyndin er frábær en þarf að ná til fleira fólks svo vel eigi að vera.

Leigufélagið á ekki bara að leysa vanda þeirra sem fá ekki inni hjá velferðarsviðum bæjarfélaga sinna.  Til staðar er millihópur sem á hvergi sínu höfði að halla.  Fellur á milli skers og báru.  Þeirra vanda þarf einnig að leysa.