Nú skín sólin og hitastigið nálgast annan tuginn. Auðvitað verðum við öll að skrattast út og brenna á okkur skallann. Annars erum við að missa af sjálfu sumrinu. Mér sem fannst gærdagurinn svo mátulegur í tíu gráðum og kaldri golu.
Author: Þrasvarður
Bílstjórarnir
Ég er einn af eilífðarfarþegum almenningsvagna höfuðborgarsvæðisins. Er samt alltaf á leiðinni að fá mér bíl en hætti svo jafnóðum við vegna þess hve dýrt er að reka dæmið. Auk þess finnst mér hundleiðinlegt að keyra ólíkt bifreiðastjóranum afa mínum og nafna. Yrði hinsvegar alsæll á vespu.
Lengi vel hafa samfarþegar mínir farið í taugarnar á mér fyrir ýmsa ósiði og leiðindi. Núna eru bílstjórarnir búnir að bætast í hópinn. Sérstaklega erlendi gaurinn sem hleypti bara farþegum út þar sem aðrir ætluðu að koma inn í vagninn. Annars brunaði hann bara framhjá biðskýlum og hirti ekkert um ópin í þeim sem vildu komast úr vagninum. Hef ekki séð hann síðan ég kvartaði kröftulega yfir honum til Strætó s/f.
Í gær kom erlendi bílstjórinn mér þó á óvart. Hann var hress og blastaði sinni útvarpsstöð yfir vagninn. Austurevrópsk harmonikkutónlist sem hann söng með. Langaði til að spyrja hann um þjóðerni en fannst það of frekt. Svona eiga bílstjórar að vera. Hressir og frjálsir en jafnframt til í að hleypa manni út.
Fyrir kurteisissakir
Rann upp fyrir mér á þriðjudagskvöld, eftir að apaheilar Evrópu höfðu hafnað Svölu okkar, að Eurovision er sorp sem þekkir ekki hæfileika. Ég horfði ekki á fimmtudag og ætla ekki að glápa í kvöld. Enda tóm tímasóun!
Nenni ekki að horfa upp á Evrópu kjósa „hjartveikan“ og asnalegan Portúgala í allt of stórum jakka sem sigurvegara. Hvað þá smjörgreiddann Ítala hoppandi eins og hálfviti um sviðið.
Við munum aldrei sigra þessa keppni. Til þess erum við of fá og eigum of fáa vini. Munum sennilega heldur aldrei komast aftur upp úr undankeppnunum. Hættum að halda forkeppni. Sendum bara Pál Óskar. Ár eftir ár. Fyrir kurteisissakir.