Strætóblús III

Sama fólkið er í vagninum á leið 2.  Fer eftir því hvaða vagn ég tek frá Hamraborginni á morgnanna niður að Fíladelfíu þar sem ég stekk út.  Í 07:20 sest alltaf kona á miðjum aldri til hliðar við mig og rífur upp símann og fer að spjalla við einhvern í hægum hljóðum alla leiðina niður að Grensás.  Útrúlegt en satt, þá fer hún ekkert í taugarnar á mér.  Enda stendur hún ekki á öskrum eins og svo margir sem rabba í símann á leið til vinnu.

Ég þoli illa gaura sem leggjast eins og kartöflupokar fyrir framan mig og stara á mig með öðru auganu meðan þeir hanga á netinu í símunum sínum.  HORFA FRAM! Ekki angra aðra farþega með leti þinni!  Þú átt að sitja uppréttur í stætó. Ekki liggja eins og aumingi. Varstu aldrei alinn upp?

Svo eru það flottu gaurarnir síðdegis með greiðslurnar sínar, fötin og skóna.  Valsa inn í vagninn gaulandi í símann sinn hátt og snjallt og halda því áfram alla leiðina inn í Hamraborg.  Sérstaklega áberandi á leið 4 sem fer í gegnum Borgartún (Wall Street).  Allt er svo mikilvægt hjá þeim að við hin í vagninum verðum að heyra um það.

Ég er greinilega orðinn grumpy old man.

Strætóblús II

Þá halda áfram sögur mínar úr almenningsvögnum borgarinnar.  Hef ákveðið að gera þær að framhaldssögu.  Engin ferð er eins.  Fólk er stórmerkilegt og skrítið og sýnir oft óvart sitt rétta eðli innan um okkur hin í vagninum á leið til eða frá vinnu. Okkur hin sem sitjum vanalega öguð, þæg og friðsæl meðan við horfum fram á við alla leiðina á ákvörðunarstað án þess að gefa frá okkur hljóð.

Vissulega felst friðsæld okkar hinna mikið í því að 90% okkar eru með andlitin grafin niður í snjallsímana okkar.  Ég get það ekki sjálfur því mér verður mál að gubba eftir smá lestur á snertiskjáinn.  Eitthvert ferðaeinkenni sem ég virðist ekki geta losnað við.  Neyðist til að horfa út um gluggann og á hina farþegana.  Samt get ég lesið í lestum og flugvélum. Skrítið?

Bílstjórinn í gær á heimleiðinni frá Smáralind var virkilega geðillur en samt fagmaður. Við vorum á nýjum VDL vagni með öllum græjum.  Geðstirður notaði hátalakerfið og hastaði á krakkagerpi aftast sem höfðu sett fæturna upp í nýju sætin.  Reif svo upp hliðarrúðuna hjá sér þegar unglingspiltur án meðvitundar með heyrnartól í eyrunum gekk beint fyrir vagninn án þess að líta til hliðanna.  „Reyndu að vera vakandi drengur og líttu til hliðanna“ þrumaði sá gamli út um gluggann svo glumdi inn í vagninn. Allt rétt og satt. Svolítil áminning um fyrri daga þegar við krakkarnir hlustuðum á bílstjórana af óttablandinni virðingu.  Þeir dagar eru víst liðnir.

Strætóblús

Átti smá tíma inni í vinnunni og hætti því upp úr þrjú og hlakkaði til að ferðast með hálf tómum tvisti heim.  Sem reyndist satt þar til að við komum inn á Grensás og vagninn fylltist.  Allt í lagi með það.  Ég sat næst aftast með útgang til hægri. Öruggur í Scania vagninum.

Verra var að feðgar frá Miðausturlöndum, pabbinn og tveir ofvirkir og uppkomnir synir hlömmuðu sér á bak við mig á níðþröngan aftasta bekkinn.  Hvernig þeir breiddu úr sér og töluðu allt, allt of hátt yfir okkur hin vakti hjá mér óttatilfinningu og ég fór að svitna af taugaveiklun.

Lætin í þeim urðu óbærileg við Kringluna þegar nokkrar unglingsstúlkur komu inn í vagninn.  Hélt um stund að sá gamli myndi skera mig á háls af fögnuði og fryggð.

Þegar við enduðum í Hamraborginni fékk ég loks æluna upp í háls við að horfa upp á feðgana þrjá horfa geðsjúkum gredduaugum á allar konurnar sem þar biðu eftir næsta vagni og hrópa eins og geðsjúklingar.  Feðraveldi einhver?

Ég hafði val um að láta þessa þrjá andskota fara í taugarnar á mér og kaus að gera það ekki framan af.  Svo fékk ég bara nóg af frekjunni í þessum gaurum.  Hvernig þeir augljóslega líta niður á okkur sem þó erum að reyna að ljá þeim hjálparhönd. Hvernig þeir meta konur sem óæðri en ekki jafningja.

Ykkur að segja þá trúi ég engan veginn á fjölmenningarsamfélag þar sem flóttafólkið tekur smá saman yfir og fer svo að segja okkur frumbyggjunum hvernig við eigum að lifa lífinu. When in Rome, do as the Romans do!

Kallið mig bara rasista fyrir þá framtíðarsýn.  Mér er andskotans sama!  Góða fólkið ferðast ekki til úthverfanna.  Það býr og starfar niður í 101 og 107 Reykjavík þar sem engir flóttamenn búa.  Hneykslast svo á okkur hinum sem neyðumst til að eiga í samskiptum við flóttamennina fyrir utan sviðsljós fjölmiðla.

If you do the crime. Be willing to do the time.  Óþolandi að þurfa að bera byrðar af ákvörðunum annarra.  Bjóðið þessu liði inn á gólf til ykkar sjálfs,  góða fólk!  Látið mig í friði!  Fjölmenningin er ekki einu sinni til í New York.  Þar flokka hópar sig skipulega frá hvor öðrum og eru bara sátt með skiptinguna.  Annars myndi dæmið ekki ganga upp.