Sjálfhverfi gaurinn

Sjálfhverfi gaurinn

Horfði / hlustaði á þessa beinu útsendingu með öðru auganu / eyranu síðastliðinn fimmtudag meðan ég var að flokka og skrá ljósmyndir við skrifborðið mitt.  Sjaldan orðið vitni að eins sjálfhverfum gaur.  Sífellt að vitna í eigin greinar og umfjallanir um Justin Bieber vikuna á undan á visir.is.

Óþolandi þegar svona egóistar eru að flytja fréttir og láta þær svo snúast um sjálfa sig. Samanber meðfylgjandi myndband þar sem hann getur ekki einu sinni rætt við samstarfsfélaga í beinni útsendingu á netinu án þess að hanga á Tinder á meðan.

Ekta EffEmmNíuFimmSjö gaur.  Vonandi verður hann bara sendur aftur þangað.

Þrjú gegn Sigmundi Davíð

Þrjú bjóða sig fram gegn Simma en aðeins Höskuldur í raun og veru því a.m.k. önnur hinna virðist bara gera það til að dreifa atkvæðum svo möguleikar Höskuldar minnki á að fella Simma D.

Verði þeim að því.  Ótrúlegt tak sem þessi spillingarpési hefur á flokksfélögum sínum. Blind foringjadýrkun í takt við það sem helvítið hann Hitler naut í Þriðja ríkinu.

Framsóknarlaust Ísland 2016 segi ég nú bara.  Kjósum þessa óværu út af þingi.  Og einnig hinn bófaflokkinn.

 

 

Frú Spilling

Nú er Anna Sigurlaug Pálsdóttir kona Sigmundar Davíðs að væla í Mogganum um illsku blaðamanna í stað þess að skammast sín fyrir aflandsreikningana.  Allt öðrum um að kenna.  Rétt eins og hjá konu Ólafs í Samskipum.

Mikið rosalega er ég orðinn leiður á Framsóknarflokknum og spillingarpésum hans. Ekki aðeins að þeir kunni ekki að skammast sín, heldur eru konur þeirra haldnar sömu villu og væla á síðum blaðanna í veikri von um að bæta hag gjörspilltra eiginmanna sinna.