Eftir kosningar í lok október mun ný stjórn samanstanda af Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Framsókn. Til hamingju Ísland!
Author: Þrasvarður
Veislan
EF kosningar fara fram í haust er ég að hugsa um í fyrsta skipti á ævi minni að mæta ekki á kjörstað. Ég nenni þessu ekki lengur. Er ekki til neins lengur að kjósa samkvæmt sannfæringu sinni. Framsóknaríhaldið mun aftur vinna. Sannið þið til. Helmingur þjóðarinnar er með höfuðin upp í rassgötunum á sér og gleypir allar kosningalygar stjórnarflokkanna.
Píratar ná aldrei fylgi skoðanakannanna vegna ágreinings innan eigin raða. Fylgi Vinstri – Grænna snýst í kringum Kötu Jakobs. Samfylkingin er týnd og tröllum gefin. Það trúir því enginn lengur að innganga í Evrópusambandið bjargi neinu hérlendis. Viðreisn mun fylgja Sjálfstæðisflokknum. Björt framtíð mun ekki bjóða fram.
Svo þegar túristarnir fatta loksins að hér er ekkert að sjá og hótelin fara á hausinn, þá fyrst komast Píratar, Samfylking og Vinstri – Grænir að til að taka til eftir veisluna.
Menningarnótt
Skrattaðist hálffimm í strætó niður í bæ með mömmu og brósa eins og síld í tunnu. Þrömmuðum niður Hverfisgötu, gegnum Aðalstræti, yfir Austurvöll og í Hljómskálagarðinn þar sem Geiri Sæm var að gaula. Leiðir skildust skömmu seinna þegar Friðrik Dór fór að væla í hljóðnemann.
Nennti þessu ekki lengur og brunaði með fyrsta vagni frá BSÍ upp á Hlemm þar sem múgur og margmenni biðu bæði eftir leið 2 og 4 sem áttu að fara heim í Hamraborg eftir tæpan hálftíma. Sætti mig ekki við þetta og splæsti því í leigubíl í staðinn.
Skil ekki þessa áráttu að elta ókeypis strætó kjaftæði. Kostar ekki nema 420 kr. fyrir fullorðinn einstakling í vagninn aðra daga. Margföldum það með fjórum einstaklingum og smyrjum aðeins meira ofan á og þú færð svipað út í topp þægindum upp að dyrum með leigubíl. Plús að við notum leigubílana allt of lítið.
Annars var ágætt að renna í gegnum miðbæinn og drekka í sig stemninguna. Sérstaklega af því að ég nennti engan veginn niður eftir. Er meira fyrir að fara fyrr um daginn og skoða mig um í hliðargötum jafnt sem aðalgötum í rólegheitum. Geri það kannski að ári og næ að skoða Grandagarð í leiðinni.