Borgarablús

Skil ekki alla þessa hamborgarastaði sem virðast spretta upp með reglulegu millibili. Að minnsta kosti einn í hverjum mánuði. Enn ein Hamborgarabúlla Tómasar hefur skotið upp kollinum í sjálfum Kópavogi. Ég slæddist þar inn síðdegis í gær í miðjum göngutúr og pantaði plain hamborgaramáltíð. Tæpur átjánhundruð kall fyrir barnaborgara og barnaskammt af frönskum og lítið glas af gosi. BRAVÓ! Fór sársvangur aftur út.

Ég raðaði þessum allt í lagi borgara ofan í mig en fattaði svo þegar örfáu franskarnar voru eftir að ég hafði gleymt gosinu. Fór því og sótti það en sneri aftur að tómu borði því ofurduglega afgreiðslustúlkan hafði hreinsað allt af því á þessari hálfu mínútu sem ég sneri mér við. Gat ekki annað en hlegið þegar liðið bauð mér aukafranskar í skaðabætur. Þakkaði bara fyrir mig og gekk út þess fullviss að borða ALDREI aftur á þessari búllu.

Þá er nú American Style með mun betri, ódýrari og stærri máltíð. Auk áfyllingarinnar á gosinu. Svo var einhver að segja mér að Kebabborgarinn á Saffran sé ljúffengur. Og Vitaborgarinn stendur víst alltaf fyrir sínu þó Vitabar sé enn sami sveitti þynnkustaðurinn. Ferstikluskálinn í Hvalfirði er með girnilega borgara fyrir þá sem nenna í smá bíltúr samkvæmt einhverjum á ÍNN.

Flest er betra og stærra en þessi sýnishorn af mat og móðgandi hraða tiltektarþjónusta á Búllunni við Dalveg. Rétt eins og maður eigi helst að drösla sér þaðan út sem fyrst og alls ekki fara að lesa laugardags DV eins og ég dirfðist til. Samt var þessi hola nær tóm af fólki.

Gaman er að gæla við ölið

  1. Verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis) 17. mál, lagafrumvarp VilÁ. Framhald 1. umræðu.

Haldið verður áfram í dag að ræða frumvarp um sölu áfengis í matvörubúðum.  Í Morgunútgáfunni áðan kvað Óðinn Jónsson stjórnandi þáttarins að upp þann dóm að þetta frumvarp muni ekki ná fram að ganga.  Hvað er fjölmiðlamaður á ríkisfjölmiðli að blása út skoðanir sínar!

Svo sungu Ögmundur og Steingrímur J. sama þreytta sönginn í gær um lýðheilsusjónarmið.  Að neyslan muni aukast. – Hvað með það?  Skárra er að gæla við ölið en sykursætt gosið.  Leiðinlegir þessir forræðishyggjufasistakommar og uppþurrkaðir hipsterar!

Framtíðin

Félag lýðheilsufræðinga leggst gegn frumvarpi um að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum. Nefna sem rök að unglingadrykkja hafi minnkað svo mikið síðustu ár. Taka ekki með inn í reikninginn að ungdómurinn reykir bara gras og marijuana í staðinn fyrir að drekka bjór. Þarf heilt félag fyrir einn lýðheilsufræðing?

Þvermóðskan ríður sjaldan við einteyming. Fólk er svo innilokað í eigin fordómum að það hálfa væri nóg. Hvað kemur því við þó mig langi til að grípa bjórdós með þegar ég versla inn til heimilisins? Einn fyrir svefninn eftir langan og strangan dag. Af hverju neyðist ég til þess að fara langa leið í ríkisrekna sérverslun?

Djöfull þoli ég ekki svona forræðishyggju. Hata landbúnaðarkerfið þar sem þykir lenska að svíkja neytendur með einokun Mjólkursamsölunnar. Og það með lögum! Bið fyrir komu Costco inn í landið. Bið fyrir því að eftir næsta hrun (sem mun koma von bráðar) munum við hafa vit á því að ganga inn í Evrópusambandið og hætta þessu hokri út á miðju Atlantshafi.