Guðni Ágústsson er maður að meiri fyrir að taka ekki þátt í þessum sveitarstjórnarsirkus í Reykjavík. Tek ofan fyrir honum fyrir að ákveða að fara ekki fram. Hefði verið svo örvæntingarfullt eftir brottfall Óskars spillingarpésa í eigu Eyktar h/f. Hvað eru líka fjósamenn að gera á mölinni?
Margt fer í taugarnar á mér mánuði fyrir kjördag. Til dæmis uppstilling Samfylkingarinnar í mínum heimabæ Kópavogi. Af hverju fékk Pétur Ólafsson ekki að taka við af Guðríði sem oddviti? Nei, frekar var einhver nafni hans Hrafn Sigurðsson settur sem oddviti og Ólafsson yfirgaf flokkinn frekar en að þiggja aftur þriðja sætið á listanum.
Kann hvorki við uppstillingar né valdabrölt einhverra aðfluttra sem heimta nógu þægilegt sæti á kostnað þeirra sem hafa búið hér lengst af og unnið sig upp innan flokksins með dugnaði. Ætla því að refsa flokknum fyrir hugsunarleysi sitt. Kýs eitthvað annað eftir mánuð. Látið ykkur þetta að kenningu verða Samfylkingin í Kópavogi!
Roy Kelton Orbison hefði orðið 78 ára í gær hefði hann lifað. Varð bráðkvaddur 52ja ára endurreisnarárið sitt 1988 með Traveling Wilburys og síðustu sólóplötunni sinni. Með einstaka rödd milli baritóns og tenórs. Náði allt að fjórum áttundum. Óperusöngvari rokksins. Snilldar lagasmiður en ekki allra.
Texasbúi með einhverja óútskýrða og djúpa tilfinningu í röddinni sem samtímasöngvarar hans bjuggu ekki yfir og dáðu. Þeirra á meðal voru vinir Roys, Elvis og Johnny Cash. Samdi marga af sínum fyrstu smellum í bílnum sínum þegar litla fjölskyldan hans bjó við þröngan kost og friður var af skornum skammti í litlu íbúðinni.
Ætíð svartklæddur á sviðinu eins og Cash og síðar með dökk sólgleraugu. Hreyfði sig aldrei í takt við tónlistina. Þjáðist af miklum sviðskrekk og fór að bera dökk gleraugu eftir að hafa gleymt þykku sjóngleraugunum sínum heima eitt giggið. Litaði ljósleitt hárið á sér svart frá unga aldri. Rétt eins og Elvis sitt rauðblúnleita hár.
Eftir dauða fyrri konu sinnar og stuttu seinna tveggja elstu sona þeirra fór Roy að bera þýska járnkrossinn um háls sér til minningar um þau. Krossinn er ekki nasistatákn þó margir haldi það, heldur þýskt heiðursmerki frá miðri nítjándu öld og nú tákn bifhjólafólks. Roy og Claudette fyrri kona hans deildu ást sinni á mótorfákum, en hún dó af slysförum á einum slíkum. Synir þeirra brunnu inni meðan Roy var á tónleikaferðalagi. Aðeins sá yngsti bjargaðist.
Sjálfur kynntist ég Roy í gegnum Traveling Wilburys. George Harrison hafði kynnst honum á tónleikaferð um Bretland 1963 með Bítlunum og stofnaði súpergrúppuna með honum aldarfjórðungi síðar. Ég féll gjörsamlega fyrir þessari rödd. Keypti bæði fjórfalda safnplötu hans og nýjustu afurðina rétt eftir að hann dó blessaður kallinn. Fór með þennan áhuga eins og mannsmorð og ræddi hann ekki við nokkurn mann. Fimmtán ára unglingar hlustuðu á eitthvað allt annað og ferskara. Eða það skilst mér. Kannski voru fleiri krakkar sama sinnis og ég?
Aumingjaskapurinn og mannfyrirlitningin hjá þessari aumu stjórn heldur óhikað áfram. Nú skal níðst þar sem síst skyldi. Á langtímaatvinnulausum sem dottnir eru út af bótum og inn á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. Nú skal dylja dulda atvinnuleysið. Svipta ólánsama einstaklinga sinni síðustu von og viðurværi. Reka þau beint í snöruna með tóman maga. Sveitarstjórnarkosningar eru í nánd.
Eygló velferðarráðherra er varla búin að sleppa kjökrinu yfir fátækt íslenskra barna þegar hún skellir þessu frumvarpi fram með bros á vör. Skilur hún ekki að tengsl eru á milli atvinnuleysis foreldra og fátæktar barna? Að skerða aðstoðina um helming þýðir bara minna á diskinn og meiri eymd. Eins og hún sé ekki næg fyrir. Það leikur sér enginn að því að hafna ömurlegu og illa launuðu starfstilboði. Þvinguð áfengismeðferð er sóun á peningum sem skilar ekki varanlegum árangri.
Vandinn hverfur ekki með því að afneita honum eða sópa undir teppið. Þýðir ekkert að gera fólki tilboð sem það getur ekki hafnað með byssuhlaup við gagnaugað. Nær væri að setja upp kerfi sem smá saman kæmi langtímaatvinnulausum aftur út á vinnumarkaðinn. Sambland af sjálfstyrkingu, aukinni menntun og vinnu. Nei, betra að stilla fólki upp við vegg á staðnum og refsa því svo grimmilega þegar það fylgir skynsemi sinni og hafnar skítastarfi sem skilar minna í budduna en strípuð aðstoð frá bænum.