Frekja hinna fáu og háværu

Þoli ekki þegar fólk segir að ekki megi breyta hlutum til batnaðar því svona hafi þetta „alltaf“ verið.  Ekki má selja áfengi ásamt matvöru því tæknikratar landsins vilja hafa vit fyrir fólki sem kann sér ekki hóf í drykkjunni. Þess vegna má ekki heldur slá af hæstu ofurskatta á byggðu bóli af guðaveigunum.  Ríkið þarf á þeim að halda til að sukka og svínast með.  Ekki fara þeir til forvarnar- og meðferðarmála.  Svo mikið er víst.

Ekki má flytja inn ferskt kjöt því bændamafían er á móti því.  Vill fá að sitja ein að markaðinum og rukka okkur neytendur í rassinn fyrir hvern kjötbita.  Röfla svo um matvælaöryggi og að við séum að greiða fyrir gæði og hreinleika vörunnar.  Gott og vel.  Megum við samt ekki prófa „hreint“ kjöt frá öðrum löndum líka?

Meirihluti þjóðarinnar vill ljúka viðræðum við Evrópusambandið og svo kjósa um aðild.  Hrunflokkarnir sem eru nú við stjórn taka það ekki í mál og vilja slíta viðræðum.  Ráða þar hagsmunir kvótagreifa og kaupfélagsstjóra úr Skagafirði.  Ekki þjóðarinnar.

Þegar ég fer í Iceland og Kost þá rennur í ljós fyrir mér að verslanir landsins selja flestar sama draslið.  Allar nema þessar tvær.  Þess vegna geri ég mér reglulega ferð í þær.  Jafnvel þó þær séu úr leið fyrir strætógaur eins og mig.

Nei, hérna má engu breyta vegna frekju hinna fáu og háværu.

Fæðingarbær íslenska pönksins

Helvítið hann Gísli Marteinn að dissa Kópavog.  Hvernig dirfist hann!  Eins og Reykjavík sé eitthvað skárri, skítug og illa til reika. Með djammlíf dauðans og ofbeldi.  Minjagripabúðir í tugum frá Hlemmi niður á Lækjartorg sem selja sama draslið.

Veitingastaðirnir eru það sem halda uppi merki miðbæjarins. Söfnin og hönnunarbúðirnar. Sjávarloftið.  Gott og vel.  En Kópavogur er bær til að búa í og ala upp börn.  Stærsta og besta úthverfi höfuðborgarsvæðisins. Næst stærsti bær landsins.   Fæðingarbær íslenska pönksins.

 

Mamma með mömmum

Nú er engin mamma með mömmum nema mæta með nýfætt afkvæmið á fyrsta bekk á tískusýningar.  Skítt með hvað skipuleggjendur segja.  Hipstermamman ræður!  Sá eina koma út af veitingastað með hvítvoðunginn sinn í burðarstól. Óttast þessar mæður ekkert að viðkvæm börnin með vanþróað varnarkerfi smitist af einhverri óværu.  Eða er þeim bara nákvæmlega sama?

Eins að gefa brjóst langt fram eftir æsku barnsins og saka svo fólk um fordóma þegar það bendir á að kannski sé eitthvað athugavert við það að muna eftir að hafa verið á brjósti móður sinnar.  Bara svona upp á framtíðargeðheilsu og velgengni í lífinu.

Little Britain gaurarnir gerðu þessu góð skil þar sem fullorðinn maður var alltaf að heimta sopa hjá mömmu sinni og ömmu.  Vandræðalegt!  Brjóstagjöf er aðeins nauðsynleg fyrstu vikurnar. Þá skilar broddurinn flestum nauðsynjum til barnsins.  Allt umfram það þjónar litlu sem engu.

Hvernig getur það verið eðlilegt að barn sem er byrjað að ganga hangi enn á brjósti.  Hvað þá leikskólabarn eða krakki í grunnskóla?  Kallar bara á einelti og útskúfun frá skólafélögum.

Krakkar sem hanga á brjósti langt fram eftir aldri eiga á hættu að verða aumingjar.  Ósjálfstæð á andlegri örorku og flytja aldrei að heiman.  Kannski vilja mömmurnar einmitt það?