Sparkað í liggjandi mann

Eins ánægjulegt og það er mér að atvinnuleitendur fái desemberuppbót þrátt fyrir Trölla „Grinch“ ríkisstjórnarinnar, Vigdísi Hauksdóttur, þá er miður að margir eldri borgarar fá lítið sem ekkert aukreitis í jólamánuðinum.

http://www.ruv.is/frett/kjarasamningar-undirritadir en persónuafsláttur ekki hækkaður.  Fátæklingar fá áfram að bera byrðar samfélagsins.  Halda uppi hripleku heilbrigðis- og velferðarkerfi og auðrónum sem finnst móðgandi að leggja til samneyslunnar í hlutfalli við tekjur sínar.

Misskiptingin helst áfram en fylgjendur Vigdísar finnst ekki nóg gert.  Vilja skera almennilega inn að beini og helst slá af allar bætur.  Þetta lið getur bara farið að vinna eins og annað fólk.  Þrátt fyrir að litla sem enga vinnu sé að fá.  Fara þá bara af örorku yfir á framfæri sveitarfélaganna eins og atvinnuleitendurnir sem eiga ekki lengur rétt á bótum.

Vandinn hverfur ekki Vigdís Hauksdóttir, hann færist einungis til heimska ljóskan þín!  Hvernig væri að fjárfesta í heila í stað ónýtu lögfræðiprófi frá Bifröst! Mikið mun ég fagna þegar þú fellur út af þingi illfyglið þitt.  Eða eins og einn á Facebook orðar það, þá ertu sífellt á svipinn eins þú sért nýbúin að sparka í liggjandi mann.

Bænastundir í skólum

Við erum eyjafólk og þar af leiðandi hrædd við fólk handan hafsins.  Aldirnar geyma sögur af vondum útlendingum sem vildu okkur aðeins illt.  Ef það voru ekki danskir herrar í Kaupmannahöfn þá voru það Spánverjarnir sem við myrtum fyrir að hleypa íslenskum heimasætum upp í seglskipið sitt. Gleymum ekki Tyrkjaráninu.

Löngu orðið ljóst að útlendingar eru illmenni upp til hópa.  Frekjudallar sem heimta að fá að reisa hér moskur á bestu stöðum borgarinnar.  Sumir þeirra vilja jafnvel fá að kaupa hálft hálendið undir golfvelli fyrir ríka Kínverja og austfirskar hafnir í framhaldinu.

Hérna sleppir reyndar kaldhæðninni hjá mér.  Finnst fátt fyndið við að einn helsti leiðtogi múslima hérlendis sé að heimta að tillit sé tekið til bænastunda í íslenska skólakerfinu.  TRÚ á einfaldlega ekki að stýra skólastarfi í grunnskólum. PUNKTUR. Mötuneyti ekki að taka svínakjöt af matseðli af tillitssemi við mikinn minnihluta nemenda.  Fólk velur einfaldlega og hafnar á diskinn sinn.

Svo birtist þessi sami maður skömmu seinna með konu sinni og barnabörnum til hjálparsamtaka með lambalæri og fjölmiðla í eftirdragi. Tilviljun. Tel ekki. Hann veit einfaldlega að hann er búinn að gera upp á bak með frekju sinni og neyðist til að bæta fyrir það. Ísland er ekki enn tilbúið að leggjast flatt fyrir Islam.  Erum enn að meðtaka Kristnina.

Dragðu þig í hlé Vigdís!

Ég var einn af þessum langtímaatvinnulausu.   Fékk engan jólabónus fyrsta árið (2009) og þraukaði því hátíðarnar með tóma vasa í það skiptið.  Þökk fyrir Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands.

Næstu Jól greiddi hin norræna velferðarstjórn út jólabónus svo maður gat gert sér glaðan dag eins og restin af þjóðinni.  Kann ég henni góðar þakkir fyrir.  Var mannleg stjórn þrátt fyrir bannisma Vinstri – Grænna.

Sitjandi heljarstjórn Vigdísar Hauksdóttur formanns fjárlaganefndar og meðlims hagræðingarnefndarinnar hlær bara að atvinnuleitendum og segir þeim að éta það sem úti frýs.  Felldi tillögu þess efnis að greiða út jólabónusa í ár.

Sem fyrrverandi langtíma atvinnuleitandi hræki ég á ríkisstjórnina fyrir að hafa Jólin af atvinnuleitendum.  Af hverju mega þau ekki halda hátíð eins og við hin? Lyfta upp andanum og brosa einn dag?  Borða góðan mat í góðra vina hópi og jafnvel gauka litlum gjöfum að börnum og barnabörnum?

Eftir þessa gerræðisákvörðun meirihluta fjárlaganefndar fer ég að hallast að þeirri skoðun fjölda fólks í samfélaginu að Vigdís Hauksdóttir sé útsendari hins illa í neðra. Hún virðist þrífast á því að svipta fólki hamingjunni.

Næst á dagsskrá hjá henni verður eflaust að leggja niður ALLAR bætur.  Hvaða nafni sem þær kunna að nefnast.  Öryrkjar og aldraðir.  Hafið varann á.  Vigdís Hauksdóttir er á leiðinni til ykkar með niðurskurðarsveðjuna sína hátt á lofti.

Tek nú heilshugar undir þær vangaveltur að Vigdís Hauksdóttir er orðin hættuleg íslensku samfélagi.  Hún hefur allt of mikil völd.   60 starfsmenn og verktakar RÚV eru án vinnu vegna þess að hún „er nú einu sinni í þessari hagræðingarnefnd og allt er undir.“  Helmingur starfsfólks Rásar 1 er horfinn af sviðinu.

Vonandi finnur DV eða Kjarninn einhvern veikan blett á Vigdísi svo við losnum við hana af þingi.  Landið þolir ekki mikið meira af hennar fasisma.  Annars óttast ég að einhver hvatvís byssueigandi heimsæki hana með hlaðinn hólk.  Varla viljum við það?

Dragðu þig í hlé Vigdís!