Áramótablús í rénun

Gleðilegt nýtt ár þið sem nennið að lesa þetta bull í mér.  Áramótin voru hefðbundin.  Flott fram yfir Skaup en svo bara sömu gömlu og sveittu sprengjurnar.  Mamma dró mig upp að Kópavogskirkju í Borgarholti.  Flott útsýni og fullt af túristum með myndavélar.  Ég var ekki að nenna þessu og langaði heim að sofa.  Sorry mom!

Hátíðirnar fara misjafnlega í fólk.  Jólin eru auðveldari.  Áramót eru ekki fyrir einstæðinga eins og mig.  Þá loksins bölva ég sjálfum mér hressilega fyrir að hanga enn einn með sjálfum mér.  Og verð hundleiðinlegur.  Langar bara heim í kyrrð og ró.  En nú er vel liðið á fyrsta dag ársins og áramótablúsinn er í rénun.

Get ekki kvartað.  Er meira að segja með starf sem ég finn mig í og líkar vel við. Langt síðan að það hefur gerst.  Um að gera njóta þess meðan varir.  Heitið mitt er ekki að komast í kjólinn fyrir jólin eða hlaupa heilt maraþon, heldur vinna almennt að betri heilsu; bæði andlegri og líkamlegri.  Einnig að hætta velta hlutum svona mikið fyrir mér heldur leyfa þeim frekar að gerast.

Verð sennilega búinn að gleyma þessu öllu eftir viku.  Alveg eins og allir hinir sem gera áramótaheit.

Maður með leg

Er ég kominn með leg?  Þykist ég styðja femínista upp á veika von um drátt frá einhverri þeirra seinna meir?  Báðar réttmætar spurningar.  Svar mitt er að það væri kúl að vera með leg.  Geta bæði getið og gengið með barn.

Man að ég sat stundum í þungum þönkum sem barn að ímynda mér hvernig ég væri hefði ég fæðst sem stelpa.  Hvort það hefði verið verra eða skárra en að vera strákur.  Hvort það skipti einhverju máli.  Erum við ekki bara einstaklingar í mismunandi farartækjum með sínum kostum og göllum?  Til hvers að fara í kynskiptaaðgerð?

Nei, ég styð ekki baráttu femínista upp á von um knús, kossa og kynlíf hjá skoðanasystrum mínum.  Femínismi er einföld mannréttindabarátta fyrir mér. Sjálfsagðar kröfur sem auðvelt er að styðja.

Sýnum samtakamátt!

http://www.timarim.is/2013/12/hvad-gera-thessir-kallar-a-milljonalaunum/  Allir sækja að Jimmy Hoffa Íslands fyrir að segja sannleikann.  Ætli hann verði ekki látinn hverfa ofan í einhverja sementssteypu með þessu áframhaldi.

http://www.dv.is/blogg/ding/2013/12/22/asi-semur-um-14-ryrnun/  Fellust grátandi í faðma fyrir þessu smælki og fóru næstum að totta hvorn annan fyrir framan myndavélarnar.  Skammarleg forysta ASÍ sem gerir nákvæmlega ekki neitt nema fyrir SA.  Allt ein stór mafía sem setur leikrit á svið fyrir hverjar kjaraviðræður.

Löngu tímabært að hjóla í þessa fámennu klíku vinnuveitenda og verkalýðsforkólfa. Sýna þeim hver ræður þegar samtakamáttur verkalýðsins tekur við sér.