Silfurdrengirnir

Tveggja vikna handboltaleiðindi hefjast í dag á RÚV.  Ekki að dagsskráin versni mikið fyrir vikið.  Bláköld þjóðremban mun vella út um skjáinn ásamt afsökunum og gráti yfir slæmu gengi liðsins.  Silfurdrengirnir frá Peking 2008 eru svipur hjá sjón.  Erum ekki lengur „stórasta“ land í heimi.

Íslendingar eru sennilega eina þjóðin á hnettinum sem heldur upp á annað sætið. Hjá öðrum þjóðum er annað sætið ekki til.  Svona álíka og að halda upp á að fótboltalandsliðið hafi næstum því komist til Brasilíu.  Fáranlegt!  There is no second place.

Kannski ætti ég að gerast sjóræningi?

Í sinni einföldustu mynd skipta fjórflokkarnir þannig málum með sér: Sjálfstæðisflokkur sér um útgerð, heildsala, fjármálagosa, ríka fólkið og sérhagsmuni sinna flokksmanna;  Framsókn um landbúnaðarkerfið, bændur afturhald, ríka fólkið og sérhagsmuni sinna flokksmanna;  Samfylking um utanríkismál, ESB, báknið og sérhagsmuni sinna flokksmanna;  Vinstri-Grænir um báknið, einangrun landsins, boð og bönn, skattahækkanir og sérhagsmuni sinna flokksmanna.

Björt Framtíð er poppuð útgáfa af Samfylkingunni.  Eina vonin á þingi eru Píratar. Kannski ætti ég að gerast sjóræningi!

Boðskapur yfirstéttarinnar

Nenni varla að fjalla um bullið í forsetanum, forsætisráðherranum eða biskup svartstakka.  Þetta fólk stýrir ekki lífi mínu, þótt það haldi það.

Þau þrjú geta gasprað að vild um áramót.  Boðskapur þeirra kemur mér ekkert við. Þau tilheyra yfirstétt landsins og eiga ekkert með að bulla um stéttlaust samfélag Íslendinga.  Sem er tóm tjara.  Höfum aldrei verið stéttlaus.

Þessi þremenningaklíka virðist ganga að því sem vísu að íslenska þjóðin sé bæði ólæs og kunni ekki á netið.  Geti ekki aflað sér upplýsinga um heiminn í kringum okkur.  Myndað okkur skoðun.

Hlusta ekki frekar þegar Brynjar Níelsson alþingismaður og lögmaður fer að röfla um kristin gildi og skort þeirra í samfélaginu.  Hann stýrir ekki heldur lífi mínu.

Ég vorkenni hinsvegar þeim einstaklingum sem hlýða á röflið í þessum fjórum boðberum yfirstéttarinnar og fara eftir því.