Við segjum ekki neitt

Halldór Kiljan Laxness kunni að orða hlutina.  Jafnvel svo vel að orð hans eiga enn fullt erindi í dag:

„Í Íslandssögunni eru engin dæmi þess að landsmenn hafi nokkurn tíma risið upp gegn óréttlæti eða kúgun. Þetta er einstakt meðal þjóða Evrópu.  Það er álitið að fáar þjóðir hafi þolað kúgun og yfirgang af meiri kurteisi og undirgefni en Íslendingar. Um aldaraðir, allt fram á þennan dag, lifðu þeir í skilningsríkri sáttfýsi við kúgun, án þess að gera nokkru sinni tilraun til uppreistar. Engri þjóð var byltingarhugtakið jafn framandi. Æfinlega voru Íslendingar reiðubúnir að kyssa þann vöndinn er sárast beit …“. Í stað þess að segja meiningu sína við kúgarana, þögðu Íslendingar, fóru heim af þeirra fundi og lömdu konuna og spörkuðu í hundinn. Íslendingum er genetískt lífsins ómögulegt að snúa spjótum sínum til baka að árásaraðilanum.“

Sorglega satt.  Því miður.  Núna leyfum við sitjandi hrunstjórn að ljúga að okkur og svíkja kosningaloforð sín hver af fætur öðru.  Og segjum ekki neitt.  Þannig er okkar lýðræði.

Grýttari vegurinn valinn

Ísland er búið þvermóðskufullu fólki sem skítur frekar standandi heldur en að auðvelda sér lífið og setjast á hækjur sér.  Gerum okkur oft lífið erfiðara en þarf að vera.

Greiðum frekar himinháa vexti af öllum lánum heldur en að ganga inn í Evrópusambandið og taka upp Evru.  Okkur finnst svo gaman að halda útgerðinni uppi.  Sennilega vegna þess að hún er svo gjafmild í okkar garð.

Sættum okkur við einhæft framboð af landbúnaðarafurðum og mjólk því bændaforystan vill það þannig.  Samkeppni á því sviði er miskunarlaust drepin niður. Tvö sjálfstæð fyrirtæki á sviði mjólkuriðnaðar ströggla þó enn þrátt fyrir grímulausar tilraunir Mjólkursamsölunnar til að slátra þeim.

Kaupum glöð dýrasta áfengi á byggðu bóli úr þar til gerðum búðum því einhver siðapostuli vill hafa það þannig.  Eigum að skammast okkar á bæði sál og í veski fyrir að drekka görótta drykki.  Mætti halda að við værum mormónar.

Kjósum aftur yfir okkur hrunflokkana sem komu okkur næstum á vonarvöl því okkur fannst vinstristjórnin ekki vinna nógu hratt.  Árangurinn er augljós.  Annað hrun er framundan því stjórnarflokkarnir eru svo uppteknir við að skipta á milli sín góssinu og selja landið til Kínverja.  Hvenær lærum við!

Röflum úti í eldhúshornum þegar einhver vara hækkar í verði.  Förum svo út og kaupum hana.  Erum svo samstöðulaus og einskorðuð við eiginn rass að ekkert verður úr mótmælum okkar.  Búsáhaldabyltingin er undantekningin sem sannar regluna.

Væri blóðið í okkur ekki undir frostmarki myndum við fara með vopnum gegn auðrónunum sem arðrændu okkur.  Draga þá út úr illa fengnum höllunum sínum og hengja þá upp í hæstu tré.  Vinda ránsfenginn úr þeim.  Senda þá svo í útlegð til Tortola.

Í stað þess að auðvelda okkur lífið kjósum við frekar grýttari veginn í einhverri óútskýrði þrjósku og stolti.  Merkilegt!

Silfurskeiðungurinn

Lítur ekki út fyrir að smánarsamningar ASÍ og SA verði samþykktir af öllu félagsfólki verkalýðsfélaganna svo ríkisstjórnin réttir út rýrt bein í formi loforðs um að hætta við einhverjar gjaldsskrárshækkanir…en aðeins ef samningarnir verða samþykktir.

Fimm mínútum seinna varpar Bjarni Ben. fjármálaráðherra sprengju.  Kjaftar frá áformum sínum um að hækka og lækka virðisauka á matvöru.  Hækka lægra þrepið og lækka hið efra.  Eitthvað sem mun hækka matvöruverð í landinu.

En Bjarna er drullusama.  Honum finnst bara fáranlegt að fátæklingurinn fái einhverja meðgjöf í lífinu, blessaður silfurskeiðingurinn.