Sigur feðraveldisins

Sigri hrósandi karlrembur berja sér stoltar á brjóst yfir handtöku íslensku móðurinnar sem tók dætur sínar þrjár í óleyfi til Íslands frá Danmörku.  Pabbinn vann mömmuna, það skiptir höfuðmáli í huga feðraveldisins.  Enginn hugsar um vesalings börnin og þeirra skoðun.  Þeirra tilfinningar.  Hjá hverju þau vilja frekar dvelja.  Skammarlegt!

Dónakarlar

Kannski er ég kominn með leg eða ætti að fara í kynleiðréttingu til að fá eitt slíkt. Skiptir ekki höfuðmáli.  Svona greinar hreyfa við mér og segja svo margt um samfélag okkar þar sem kvalarar komast upp með ótrúlegustu hluti því það má ekki ræða þá.  Þykir óþægilegt og jafnvel dónalegt.  Sérstaklega ef þekktir aðilar eiga í hlut.

http://knuz.is/2014/01/31/kvalarar/

Hell On Wheels

Gaurinn á forsíðunni minni er aðalpersóna vestraþáttanna Hell On Wheels sem Tums bróðir kynnti mig fyrir um Jólin.  Svalasti spaðinn á svæðinu.  Fyrrverandi foringi í Suðurríkjaher sem endar sem verkstjóri við járnbrautarlögnina þvert yfir Bandaríkin eftir hefndarleiðangur sinn gegn Norðurríkjadátum sem myrtu fjölskyldu hans.

Spilling, indíánar, írskur ruslaralýður, hórur og mormónar.  Þvílík skemmtun og drama.  Minnst tveir eða þrír skotnir í hverjum þætti og þá aðallega af aðalpersónunni með Griswold & Gunnison hólkinum hans sem er reyndar Suðurríkjaeftirlíking af Colt og átti til að standa á sér í raunveruleikanum.

Bíð spenntur eftir fjórðu þáttaröðinni sem kemur út í sumar.