Uppeldið hefur mistekist

Heykvísladeild netsins hefur dæmt fyrirliða ræðuliðs M.Í. í Morfís til dauða fyrir kvenfyrirlitningu gagnvart einum anstæðiingi sínum í í liði M.A.  Eflaust réttilega. Svona á ekki að koma fram við aðra.  Hvorki konur né karla.

Verst þykir mér þó að  heykvíslarnar sakast við kennarana.  Sökin er ekki þeirra, heldur foreldranna.  Uppeldið hefur mistekist.

Enga fordóma

Capture

Loksins kemst Botnleðja í Júróvisjón!  Kominn tími til að prófa eitthvað rokkað svona einu sinni.  Hvaða Evrópubúi fellur ekki fyrir miðaldra rokkurum í Henson göllum? Tala nú ekki um diskódanssporið í millikaflanum.  Tær snilld.  Og þingmaður í bakröddum. Halló!  Við sigrum í ár…NOT.

Reiðistjórnun

Stundum vildi ég geta skallað eða kýlt þá sem sækja að mér.  Hef því miður ekki í mér þessa eiginleika.  Fer bara í baklás, verð klökkur og missi málið.  Kyngi reiðinni í stað þess að leyfa henni að komast út í gegnum gott hnefahögg eða skalla.

Ofbeldi leysir engan vanda en mikið rosalega væri gaman að sleppa öllum hömlum svona einu sinni og láta vaða í andlitið á einhverju gerpinu.  Nei, ég segi svona.