Ríkisstjórn sérhagsmuna gagnvart þjóðarhagsmunum

Varnagli.  Landsfundur og flokksþing eru þjóðin.  Var aldrei ætlunin að kjósa. Einmitt þegar ég tel næga heimsku komna upp úr Framsóknarflokknum bæta þau um betur. Hrokinn svoleiðis lekur af þessu liði.  Það voru jú kosningar í fyrravor.

Við eigum bara að hafa okkur hæg næstu þrjú árin og leyfa þeim að loka fyrir alla möguleika okkar gagnvart Evrópu.  Leyfa þeim frekar að selja landið í hendur á Rússlandi sem er í töluðum orðum að ráðast inn í Úkraníu og Kína sem ætlar sér að legga undir sig heiminn með góðu eða illu.  Helst með dollurum og evrum.

Bjarni Ben. situr steinhissa í stofunni sinni í Garðabæ yfir viðbrögðum þjóðarinnar. Skilur þau ekki.  Var jú bara að svíkja kosningarloforð.  Er búinn að gleyma að flokkurinn hans hefur ekki verið þekktur fyrir að svíkja sín örfáu kosningarloforð í gegnum tíðina.

Gunnar Bragi búðarloka frá Skagafirði og víst utanríkisráðherra blasti við mér fyrir utan A4 við Smáratorg í gær.  Því miður með syni sínum því annars hefði ég kannski rokið á hann og skallað hressilega frá meirihluta þjóðarinnar sem vill kjósa um áframhald viðræðna við Evrópusambandið.

Átta þúsund manns mættu á Austurvöll til að mótmæla í gær.  Önnur búsáhaldabylting er að myndast vegna valdníðslu ríkisstjórnarinnar.  Sem er gott og þarft.  Þetta lið átti aldrei að komast aftur að kjötkötlunum svona skömmu eftir hrunið.  En gerðu það með því að vera á móti Icesave og lofa skuldaleiðréttingu sem reynist hvorki vera fugl né fiskur.

Leiðréttum mistökin og mótmælum í gegn nýjar Alþingiskosningar samhliða sveitastjórnarkosningum í vor.  Ísland má ekki við þremur árum í viðbót með þessa ríkisstjórn sérhagsmuna gagnvart þjóðarhagsmunum.

Það voru jú kosningar í vor

Forsætisráðherrafíflið þykist vera að koma á löngu þörfum breytingum á íslensku samfélagi með því að slíta viðræðum við ESB og raða flokksgæðingum við jötuna í Seðlabankanum.  Jú, breytingum til fortíðar.  Allt skal verða eins og fyrir hrun. Taka tvö.  Okkur hlýtur að takast vel til í þetta sinn, hugsa fjósafasistar og sjálfgræðgismenn.  Nú á að hirða restina af íslenskri alþýðu og flytja til Tortola. Kínverjar og Rússar fá að kaupa rest á útsölu.

Af hverju gat þjóðin ekki druslast til að kjósa áfram vinstristjórn heldur en þessa andskota!  Af því að hún nennti ekki að vinna sig í gegnum hrunið.  Vildi bara fá kreditkortin sín og utanlandsferðirnar aftur.  Nennti ekki að byggja upp heilbrigðara samfélag sem lendir ekki í hruni á nokkurra ára fresti.

Þið fenguð sem þið kusuð.  Sömu, gömlu spillingarsúpuna nema bara hálfu verri og í hefndarhug.  Nú skal sorfið til stáls og við látin finna fyrir því að hafa kosið vinstristjórn síðast.  Nú skal öll gagnrýni kæfð og fjölmiðlar halda sig til hlés. Eins og Vigdís segir iðulega.  Það voru jú kosningar í vor.

Gamlakallastjórn

Aldraðir synir feðra sinna sitja við stjórnvöllinn einmitt núna.  Ganga um með bindi gamalla manna og með úreltar hugmyndir í farteskinu. Helmingaskiptaveldið skal endurvakið.  Seðlabankinn er skýrt dæmi þar sem fjölga á aftur í þrjá bankastjóra svo gamlir flokkshestar geti fengið gluggasæti með feitum tékka fram að eftirlaunum.

Ég vona og spái þessari stjórn skammlífi.  Forsætisráðherrann er viðkvæmari en sjálfur Davíð Oddsson og þolir enga gagnrýni.  Ekki uppskrift að farsælum ferli. Hlýtur að vera eitthvað úr föðurætt hans, en sá gamli þolir ekki heldur gagnrýni og hefur farið í mál við bloggara fyrir að benda á hið augljósa.  Að hann hafi sölsað Kögun undir sig með grænt flokksskírteini upp á vasann.

Eini ljósi punkturinn er heilbrigðisráðherra sem gælir við þá hugmynd að afglæpavæða eiturlyfin.  Það er að segja að það verði ekki lengur refsivert að neyta eiturlyfja.  Löngu tímabær ráðstöfun.  Rándýr og töpuð barátta að reyna hindra fólk í að dópa sig upp.

Í sama anda á að leggja Vínbúðirnar niður og slá af ofurtolla af áfengi og annari matvöru.