Þursar

Aftur eru málhaltir verkamenn úr sveitum Póllands komnir til landsins sem hvorki tala íslensku eða ensku.  Getur orðið erfitt.  Sérstaklega þegar menningarmunurinn bætist ofan á eins og ég varð vitni að í gær.

Einn af þessum málhöltu var á eftir mér við kassann í Bónus í gær. Afgreiðslustelpan lenti í þvílíkum vandræðum því hann heimtaði að fá kvittunina áður en hann greiddi fyrir vörurnar.  Sem er ekki hægt.  Hvorugt skyldi hitt svo hann hringdi í enskumælandi vin sinn með gemsanum sínum og rétti stúlkunni. Og þannig leiðréttist misskilningurinn að lokum.

Í stuttu símtalinu notaði málhalti Pólverjinn orðið „Kurva“ margsinnis og bölvaði hressilega með.  Var sem sagt að kalla indælu afgreiðslustúlkuna “ tussu“ í símann við vin sinn.  Dauðlangaði til að láta hana vita af þessu en ákvað að láta kyrrt liggja. Bara ömurlegt að verið sé að flytja inn slíka hellisbúa til landsins. Eigum nóg með okkar eigin frumstæðu þursa.

Næsta hrun

Næsta hrun er í undirbúningi.  Byggingarkrönunum fjölgar með hverjum deginum og pólskir byggingarverkamenn eru aftur farnir að fylla götur og strætisvagna borgarinnar.  Fimm prósent skráð atvinnuleysi og erlent vinnuafl er flutt inn fyrir næstu húsnæðisbólu.  Má ekki kosta of mikið.

Atvinnuleysið er í raun mun meira.  Eru bara svo margir komnir á framfæri bæjarfélaganna eftir að hafa fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta og teljast ekki með.  Allt skal líta vel út á yfirborðinu.  Kreppan á víst að vera að baki samkvæmt núverandi (en vonandi skammvinni) ríkisstjórn.

Umpólun hefur orðið í stjórnmálum landsins eftir hrun.  Áður eyddu vinstri flokkar og söfnuðu skuldum meðan hægri flokkar tóku til í ríkisfjármálum og greiddu upp skuldir.  Núna setja hægri flokkar landið á hausinn með reglulegu millibili og vinstri flokkar taka til eftir þá milli hruna.  Og kjósendur halda áfram að vera hálfvitar upp til hópa sem trúa kosningaloforðum.

Raddir eiga að fá að hljóma

Nú er verið að taka Hildi Lilliendahl af lífi á netinu.  Fólk verður víst að vera fullkomið til að geta tjáð sig um karlrembu á vefnum.  Aldrei hafa tjáð sig á barnaland.is undir öðru nafni og egói.

Hefði verið svona mikið fjölmiðlafár yfir orðum karlmanns?  Held ekki.  Honum hefði fyrirgefist allt.  Sérstaklega ef hann hefði játað að hafa skrifað allt undir áhrifum áfengis.

Veit ekki um þig, en ég fyrirgef Hildi heilshugar og held áfram að lesa allt sem frá henni kemur.  Raddir eiga að fá að hljóma.  Ekki vera kveðnar í kútinn af misvitrum ritskoðunarlöggum fyrir gamlar syndir.  Líttu þér nær!  Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum!

Ofsagleði kvenhatara og karlremba yfir örlögum Hildar er sorgleg.  Halda að með því að múlbinda hana muni baráttan fyrir jafnrétti kynjanna deyja út og þeir fá að kúga áfram.  Þvílíkir fávitar!