Ritskoðun fæðir af sér alræðishyggju

Skil vel að góða fólkið vilji banna vitleysingum að tjá sig með rassgötunum á sér. En slík bönn verða bara til þess að fólk fer að kjósa þessa vitleysinga. Og þá fyrst er fjandinn laus!

Skárra að mæta þeim auglitis til auglitis og kveða þá þannig í kútinn. Alls ekki mála þá sem einhverja vitleysinga eins og Demókratar gerðu við Trump. Varð bara til þess að hinir vitleysingarnir kusu hann aftur sem forseta.

Sjáið bara hvað er að gerast í Þýskalandi og Englandi. Hægri öfgaflokkar ná hljómgrunni rétt eins og þriðja ríki Hitlers hafi aldrei verið til. Djöflamergurinn Nigel Farage gæti orðið næsti forsætisráðherra Englands.

Við lifum á víðsjárverðum tímum. Fjórða heimsstríðið er ekki svo fjarlægur möguleiki.

Flúið út í frekara nám

Sjallar eru svo fyrirsjáanlegir. Um leið og þau fá ekki að ráða öllu í ríkisstjórn, þá flýja þau til útlanda í frekara nám. Eftir hrun hópuðust þau til Barcelona til að bæta við sig gráðu í alþjóðalögum.

Núna nennir Áslaug Arna ekki að sitja í stjórnarandstöðu án aðstoðarfólks og bílstjóra. Brunar því til New York næsta vetur og fær einhvern skeggapa til að leysa sig af á meðan. Ætlar svo að snúa aftur næsta vor og ná borginni undir íhaldið.

Verða borgarstýra með aðstoð Framsóknar og/eða Viðreisnar, því þeir dagar eru liðnir að Sjallar geti náð borginni einir sínir liðs. Og verða formaður flokksins í stað ísdrottningarinnar í kjölfarið.

Sem er gott og blessað því borgin þarf meirihluta með nýjar áherslur. Sem hendir þessari rándýru, klunnalegu og gamaldags borgarlínu út í hafsauga og breytir brúnni yfir Fossvog í venjulega akstursbrú fyrir rafvagna, rafbíla, gangandi og hjólandi.

Til rannsóknar

Þrír hópnauðgarar eru til rannsóknar og ganga enn lausir svo þeir geti nú byrlað fleiri konum ólyfjan og nauðgað þeim áður en þeir verða endanlega teknir úr umferð af fámennustu og vanbúnustu lögreglu hins vestræna heims eða æstum lýð vopnuðum kyndlum og heygöflum.

Íslenska réttarkerfið er grín! Ver alltaf geranda frekar en brotaþola.

https://www.visir.is/g/20252718130d/umraeda-um-grof-kynferdisbrot-eigi-ekki-ad-snuast-um-thjoderni-gerenda