„Og tíunda þjóðin áfram er….“

Júróvisjónveislan hafin enn einu sinni.  Tæp vika af samkynhneigðustu söngvakeppni veraldar.  Og við auðvitað búin að sigra fyrirfram.  Nema hvað!

Er reyndar rannsóknarefni hve hrifin við erum af keppninni.  Auðar götur og verslanir tæmast af gosi og snakki.  Vínbúðir hafa vart við.  Ekki frekar en kjötvinnslur að græja steikur á grillin eða flatbakarar með megatilboðin sín.

Vorið er loksins komið þegar Eurovision birtist á flatskjám landsmanna.  Við rústum þessari keppni. Svo mikið er víst!

Heykvíslar og kyndlar

Djöfulsins viðbjóður sem kosningabaráttan virðist ætla að verða.  Ekki vegna frambjóðendanna, heldur stuðningsfólks þeirra tveggja efstu í skoðanakönnunum.

Hatrið hreinlega lekur af hverju orði sem þetta lið ælir út úr sér á netinu.  Sérstaklega á ummælakerfi dv.is.  Heykvíslar og kyndlar.

Málið snýst ekki lengur um persónur frambjóðenda, heldur hvar í pólítík þau stóðu eða standa núna.  Og hvernig þau munu mögulega beita 26. grein stjórnarskrárinnar.  Hvort þau séu Evrópusinnar eða andstæðingar aðildar.

Mér er eiginlega orðið andskotans sama hver vermir forsetastólinn næstu fjögur árin.  Væri sennilega ódýrast að sleppa kosningum í framtíðinni og leyfa Ólafi greyinu að halda embættinu til dauðadags.  Því að hann á eftir að endurtaka leikinn eftir fjögur ár og hætta við að hætta.  Nenni ekki á horfa á það leikrit aftur.

Konur og menn

Tók eftir því þegar eitthvert íþróttafíflið á einni stöðinni óskaði Valsmönnum til hamingju með sigurinn í kvennahandboltanum.  Svona rétt eins og að þægar og hlýðnar Valskonur hafi verið að draga verðlaun í hús fyrir Valsmenn.  Til að þóknast þeim.

Svipað og þegar viðmælendur í fjölmiðlum tönnlast á því að „menn sætti sig ekki við…“  eða að „menn séu þakklátir fyrir…“.  Og ef einhver gerir athugasemd þá er gripið til þeirrar sígildu skilgreiningar að konur séu líka menn.

Bull og vitleysa.  Þegar konur í Val verða Íslandsmeistarar, þá eru þær Valskonur!