Forgjöf í vöggugjöf

Rosalega er asnalegt að sitja undir áróðursauglýsingum Landssambands Íslenskra Útvegsmanna í sjónvarpinu.  Hver á eftir öðrum birtast launaþrælar útgerðarkónga. Jafnvel verkalýðsleiðtogar.

Allir með byssuhlaup kvótakóngsins við gagnaugað.  Og væla gegn útvötnuðu frumvarpi um sjávarútvegsmál sem mun festa yfirráð útgerðarinnar yfir auðlindinni næstu tuttugu árin.  Sjá helst ofsjónir yfir hærra veiðileyfagjaldi þrátt fyrir ofurgróða árin eftir hrun fjármála og gengis.

LÍÚ eru gyðingar Íslands.  Forréttindahópur með forgjöf.  Fengu veiðikvóta upp í hendurnar á sér fyrir nær þrjátíu árum þegar nýtt kerfi var tekið upp undir því yfirskyni að koma í veg fyrir ofveiði.

Gyðingar í Evrópu fengu svipað forskot því þeir fengu einir fyrir siðaskiptin að innheimta vexti af lánum sem þeir veittu.  Þá þótti ekki kristið samkvæmt kaþólskri trú að græða á góðgerðum eins og lánastarfssemi.  Þess vegna eru gyðingar enn ráðandi í bankastarfssemi víðsvegar um heiminn.

Kosningar

Ef til vill er rugl að festa sér frambjóðanda strax áður en sjálf kosningabaráttan hefst.  Aldrei hafa fleiri verið í boði og hvað þá gegn sitjandi forseta.  Reyndar finnst mörgum seta hans vera orðin nógu löng.

Heyrði aðeins í Ólafi í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni.  Þar beindi hann aðallega spjótum sínum að Þóru og benti á að hún birtist honum sem mjög þægur væntanlegur forseti sem ætlar sér að fylgja ákvörðunum ríkisstjórna út í ystu æsar.  Sérstaklega á sviði utanríkismála.

Eins benti hann á að framboð hennar væri skilgreint afkvæmi framboðs Jóns Gnarrs til borgarstjóra.  Þar væri á ferð sami leikstjóri sem hefði gert heimildarmynd um grínistann þann.  Sitthvað væri útlit og atgervi í embætti forseta lýðveldisins.

Gott og vel.  En er eitthvað skárra að halda í gamlan forseta sem kemur nú fram sem yfirklappstýra LÍÚ gegn stórum hluta þjóðarinnar?  Er orðinn frambjóðandi öfgahægrimanna á Hádegismóum.  Hefði sú staðreynd þótt frétt til næsta bæjar þegar gamli komminn fór fyrst fram árið 1996.

Frekjan

Dreymdi frekjuhund frá fyrri tíð.  Vaknaði hálf fúll í kjölfarið.  Og gerði mér um leið grein fyrir að slíkir hundar þrífast á því að við hin bökkum og veitum þeim rými til að koma sér fyrir í frekju sinni.

Frekjan er svo skrítin að við búumst ekki við henni.  Og svo þegar hún loksins brýst fram þá vitum við ekki hvað skal gera.  Leyfum frekjudollunni frekar að vaða áfram í eigingirni sinni til að halda friðinn.  Enginn vill átök.

Í stað þess að stöðva frekjuna um leið og hún fer að heimta hitt og þetta…annars.  Veitum henni þetta…annars beint í afturendann.  Við ráðum okkur sjálf!