Time to wake up and smell the coffee!

Stundum skammast ég mín fyrir hve samlandar mínir geta verið blindir þegar seðlabúnti er veifað fyrir framan þá.  Skiptir þá engu að þar sé á ferð útsendari Kínastjórnar að tryggja þeim landréttindi fyrir nýtt Chinatown á Grímsstöðum.  Golfhótel my ass!  Slíkt mun aldrei bera sig.

Meðan við horfum fimm ár fram í tímann, horfa Kínverjar fimmtíu ár.  Eru nú komnir með stærsta sendiráðið í borginni og sækja fram til frekari áhrifa hérlendis.  Leiðtogi þeirra leit meira að segja við og í fyrsta skipti sá ég íslenska lögreglu bera vopn erlendum erindreka til varnar.  Undarlegt!

Nei, hættum að blekkja okkur.  Þessum manni fylgir engin atvinna fyrir íslenskan iðnað.  Hann mun fljúga inn stórum hópi samlanda sinna sem starfa á þrælataxta og greiða sín gjöld og skyldur til Kínverska Alþýðulýðveldisins.  Svo þegar hótelið er tilbúið munu bara kínverskir starfsmenn starfa þar með stöku undantekningum.

Hélt að við værum svo mikið fyrir skák að við áttuðum okkur strax að Huang Nubo er einn af taflmönnum Kínastjórnar sem er verið að koma fyrir á eyju milli Evrópu og Ameríku.

Bráðum opnast siglingaleiðin um norðurslóðir.  Áður verður Nubo búinn að kaupa niðurníddan, kvótalausan og austfirskan kaupstað og byggja þar umskipunar- og olíuhöfn.  Og þar með stela glæpnum frá okkur.

Fólk virðist ekki fatta að Kínverjar geta auðveldlega yfirtekið eyjuna okkar.  Einfaldlega með því að flytja inn hundruði þúsunda og verða fjölmennari en við.  Rétt eins og Rússar reyndu að gera í leppríkjum Sovétríkjanna.

Time to wake up and smell the coffee!

Snemma beygist krókurinn

Merkileg afsökun skólastjórnenda þegar upp kemst um einelti í þeirra skólum.  Að þar sé í gangi áætlun gegn einelti.  Svona eins og þess vegna megi það halda áfram án athugasemda.  Að þeim sem áfram verði fyrir einelti í skólum með áætlun verði ekki bjargað og megi því enda utangarðs.

Allt hjal um að gerendurnir séu líka fórnarlömb er bull!  Þeim líður ekki alltaf illa eða koma frá brotnum heimilum.  Oftar en ekki eru þeir efst í goggunarröðinni.  Vinsælu og efnuðu krakkarnir sem finnst veldi sínu ógnað af krakkanum sem þau leggja í einelti.  Snemma beygist krókurinn.

Hýenurnar í Hollywood

Hýenurnar í Hollywood eru ekki fyrr búnar að stinga Mel Gibson úr tönnunum á sér að þær snúa sér að næstu bráð.  Sjálfum John Travolta.

Einhver lögmannsleysa hefur fengið tvo nafnlausa nuddara í lið með sér sem krefjast hvor tveggja milljóna dala (250 m. kr.) af Travolta vegna þess að hann á að hafa leitað á þá.

Nú þegar virðist vera búið að hrekja aðra ákæruna.  Sleðinn var staddur í New York þegar hann átti að hafa verið nakinn á nuddbekknum í Los Angeles.  Það sem fólk reynir til að eignast peninga.

Eflaust átti að kúga fé út úr Travolta því honum væri svo annt um karlmennskuímynd sína.  Þegar það gekk ekki fengu fjölmiðlar fréttirnar.  Nú er þetta bara fyndinn farsi.

Hverjum er ekki sama hvort kallinn sé í skápnum.  Eða hvort nuddararnir séu að segja satt.  Veit ekki betur að krafa viðskiptavina um „happy ending“ sé býsna algeng.  Því ekki frá stjörnum eins og John.  Óþarfi að gera veður út af því.