Skuggar fortíðar

Fór yfir gamla tölvupósta sem ég hafði geymt hjá visir.is sem er að fara rukka fyrir netfangið.  Valdi einhverja af handahófi og þóttist senda þá áfram á hitt netfangið mitt en án árangurs.  Sendi og eyddi jafnóðum.  Komst svo að því að ég hafði sett .is í stað .com.

Sem er bara besta mál.  Hafði hvort sem var ætlað mér að eyða þessum leiðindum.  Huggun harmi gegn er að ég náði að lesa yfir flesta póstana sem náðu allt til 2007.  Auðvitað réttast að prenta þá pósta út sem eru mikilvægir.

HK über alles!

Fyrsta félagið á landinu sem var stofnað sem handknattleiksfélag er loksins orðið Íslandsmeistarar.  Til hamingju HK!

Mætti liðinu á heimleið frá Hamraborginni.  Þeir voru í langferðarbíl í fylgd tveggja vaskra lögregluþjóna úr bifhjóladeild.

Ég tók stoltur ofan hafnarboltahúfuna og  veifaði þeim.  Uppskar við það mikið öskur og ótal skálanir liðsmanna vopnuðum íslenskættuðum bjórdósum.

Svona stundum missir fólk af sem ferðast bara með blikkbeljum og nennir ekki að rölta út í búð á fallegum vorkvöldum.

Horfin sannindi

Þrammaði fyrir allan peninginn í gær.  Og komst að því að betra er að borða minna og oftar heldur en að gúffa í sig tveimur risamáltíðum á ókristilegum tímum sólarhringsins.

Fór í tvo göngutúra yfir daginn og varð að bæta á tankinn milli þeirra.  Spratt upp eins og Stjáni Blái við einn banana og gat haldið áfram þramminu.  Skrokkurinn er bara eins Mr. Fusion úr Back To The Future.  Þarf bara smá rusl og vökva með reglulegu millibili.  Og hreyfingu.

Hef komist að því að blaðalestur og neysla matar fara illa saman.  Hætti ekki að troða í mig fyrir snepillinn er búinn.  Og því miður er ég ekkert sérstaklega hraðlæs.  Er því búinn að slíta þessar tvær athafnir í sundur.

Ætti kannski að taka afa til fyrirmyndar og borða standandi eins og hann gerði oft við skurðarbrettið með hnífinn að sneiða niður lax á brauðsneið.  Annar hver biti endaði reyndar upp í honum.

Kynslóð ömmu og afa borðaði mun fituminni mat en mín gerir.  Og nær náttúrunni.  Óunnið kjöt og spriklandi fisk úr hafinu.  Helst að þau yrðu á mis við grænmeti og ávexti.  Og þau borðuðu sjaldan yfir sig eins og við teljum eðlilegt.