Skil ekki enn fólk sem hatar ketti. Hvað hrjáir þetta lið? Voru þau klóruð illa meðan þau voru að þvinga kisa einhvern tíma í æsku eða eru þau bara svona illa innrætt að upplagi?
Skil að minnsta kosti hundafólk sem hatar ketti. Sá lýður þolir ekkert sjálfstæði hjá dýrunum sínum. Hvuttarnir eiga að hlýða möglunarlaust. Kettir eru allt of sjálfstæðir. Þeir ráða sjálfir ferðinni og eigendurnir hlýða þeim án þess að gera sér grein fyrir því.
Annars skilst mér að fólk sem hatar ketti sé helst fólk sem fékk ekki að eiga nein dýr í æsku nema þau væru geymd í búrum. Svo þegar þau fullorðnast og mæta ketti sem hefur skriðið inn um kjallaragluggann þeirra, þá fríka þau út og vita ekki hvað þau eiga til bragðs að taka annað en að skrifa níðgreinar um ketti og krefjast kattarbanns.
Í þeirra heimi búa gæludýr í búrum.