Pólítísk skáklist

Hef aldrei verið neinn snillingur í skák en skilst að meiri möguleiki á sigri fáist með því að hugsa sem flesta leiki fram í tímann og sjá fyrir viðbrögð andstæðingsins.  Eru snillingarnir í ESB ekki einmitt að gera það?

Taka þátt í málsókn gegn okkur sem verður svo látin dæmast okkur í hag til að sýna fram á hve sanngjarnt Evrópusamstarfið getur orðið fyrir Ísland ef við samþykkjum inngöngu.

Eða þá að málsóknin verður látin hanga yfir okkur þar til við samþykkjum inngöngu.  Stjórnin neydd til að sneiða framhjá þjóðaratkvæðagreiðslu.  Annars kemur aldrei til slíks.  Hrunflokkarnir verða teknir við áður en umræðum lýkur.

Helbláir andstæðingar Þóru forsetaframbjóðenda þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af því hvort hún muni vísa Icesave til þjóðarinnar.  Málið er fyrir EFTA dómstólnum og fer aldrei aftur fyrir Alþingi.

Og við neyðumst til að hlýta dómsniðurstöðu.  Hver sem hún verður.  Undir það gengumst við sem höfnuðum Icesave síðast.

Öryggið á oddinn

Merkileg umræðan um auknar heimildir til að veita barnungum stúlkum getnaðarvarnarpilluna svo þær verði ekki óléttar.  Eins og það leysi einhvern vanda.  Er ekki nær að fræða ungar stúlkur um kynlíf og mögulegar afleiðingar þess.

Til að mynda er talið að stúlkur eigi ekki að byrja að stunda reglubundið kynlíf fyrr enn um 16 -18 ára aldur.  Þá verða leggöngin fyrst nógu þroskuð.  Annars er hætta á hverskyns kjallaravandamálum síðar á ævinni vegna þess hve veggir legganganna eru þunnir við ungan aldur.  Aukin hætta er á sýkingum með ótímabæru og óvörðu samlífi.

Þess vegna er smokkurinn eina raunhæfa getnaðarvörnin fyrir bæði ungar stúlkur og unga stráka.  Pillan er ekki að fara gera neitt svona snemma á æviskeiðinu.  Er raunar ævarandi vandræðagemlingur sem firrar karlmenn ábyrgð og veldur óæskilegum hormónabreytingum hjá konum.

Þóru sem forseta!

Framboðstilkynning Þóru Arnórsdóttur hefur víða hlotið hylli.  Nema helst hjá helbláum Sjöllum af gamla skólanum sem sjá bara Ingibjörgu Sólrúnu á forsetastóli að samþykkja alla villtustu óra Samfylkingarinnar og greiða leið landsins inn í ESB framhjá þjóðaratkvæðagreiðslu.

Svanhildur Hólm Valsdóttir starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisfólks hlýtur þá að horfa fram á uppsögn samkvæmt þessu.  Ekki aðeins er hún góð vinkona Þóru heldur styður hana opinberlega.

Eða eru kannski bara gamlir, tannlausir flokkshundar að gelta að næsta forseta lýðveldisins?  Úreltir kaldastríðsjálkar sem skynja ekki vitjunartíma sinn.  Að ný kynslóð er að taka við stjórnartaumum í landinu.

Fyrst kjósum við forseta sem er ekki kominn á eftirlaun.  Svo hreinsum við Alþingi af fólki sem hefur hangið þar allt, allt, of lengi.  Verið áskrifendur af þingsætum sínum í allt að þrjátíu til fjörtíu ár.  Slíkt fólk er ekki líklegt til að koma með lausnir.  Það er fast í gömlum tíma.

Og helbláum til upplýsingar þá er Þóra af vestfirskum eðalkrataættum.  Afi hennar var Hannibal Valdimarsson.  Samfylkingin er langt í frá krataflokkur fyrir utan Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.  Restin er gamalt Alþýðubandalagsfólk sem nennti ekki að fá Steingrím Joð sem formann.