Vonlaus vínpólítík

Sá Reykjavík-Rotterdam um helgina.  Ísland hlýtur að vera eina vestræna landið þar sem það margborgar sig að smygla inn áfengi sjóleiðina.  Draslið er svo dýrt úr einokunarverslun ríkissins.

Enda skellihlær hollenski glæpahundurinn þegar hann reynir að útskýra þessa grátlegu staðreynd fyrir samverkamönnum sínum í myndinni.

Reyndar eru farmenn sennilega hættir þessu sopasvindli og búnir að snúa sér að hvítu nefdufti sem tekur minna pláss og er hægt að fela hvar sem er í stóru skipi.

Hver veit nema að það breytist aftur með ört hækkandi áfengisverði í boði Skattgríms Joð.  Að lítri af vodka skuli kosta 6 – 7 þúsund út úr Vínbúð nær ekki nokkurri átt.  Eða bjór 350 – 400 krónur.

En það skiptir engu máli þó hrunflokkarnir taki aftur við.  Þeir hafa bara áhuga á að svíkja almenning enn betur í gegnum bankana.  Er skítsama þó skítugur almúginn hafi ekki efni á smá brjóstbirtu meðan hann er rúinn inn að skinni.

Sjálfselskuflokkurinn lofaði því árum saman að koma léttvíni og bjór í matvöruverslanir.  Firraði sig svo allri ábyrgð með því að setja umræðu um frumvarpið á dagsskrá á allra versta kvöldi búsáhaldarbyltingarinnar þegar allt ætlaði um koll að keyra.

Þannig hvarf sú mögulega réttarbót og hefur ekki verið nefnd síðan í sölum Alþingis.  Er víst óvinsælt að láta frá sér skattstofna í niðursveiflu.  Hvað þá mjólkurkú eins og ÁTVR.

Hikstandi dómskerfi

Rúmenskir hraðbankaræningjar búsettir í Bretlandi voru handteknir og dæmdir einn, tveir og þrír í eins árs fangelsi fyrir að reyna að afrita kortaupplýsingar.  Á meðan ganga lausir menn sem tæmdu bankana innan frá fyrir hrun og strjúka enn frjáls höfuð sín.

Svona æpandi óréttlæti sker í augu almennings.  Verður bara til þess að fólk hættir að treysta dómsvöldum í landinu.  Af hverju er ekki hægt að koma þessum helvítis útrásarvíkingum fyrir dóm og í langt fangelsi fyrir að setja landið á hausinn?

Kallar bara á dómstól götunnar því að réttlætiskennd þjóðarinnar verður að fá sitt fram með einhverjum hætti.  Ef kjarklausir dómstólar ætla að hiksta áfram þá er komið að byssukjöftunum.  Kannski er það eina sanna réttlætið.

Páskagleðin

Páskafrí í skólum hófst fyrir helgi.  Meðan margir lúsiðnir nemar nýta tímann til að klára verkefni og ritgerðir, þá verja aðrir honum í drykkju og dólgslæti í miðri vinnuviku.

Hefur víst verið nóg að gera hjá laganna vörðum að leysa upp næturgleði framhaldsskólanema í heimahúsum.  Eru víst ekki allir hrifnir af þungum bassatakti úr næstu íbúð þegar flestir sofa.

Unga fólkið er að nýta tímann fram að páskahelginni þegar helgislepjan umlykur allt og Ríkið og barir borgarinnar eru að mestu lokaðir.