Fullu verslunarfrelsi ekki náð

Er engu líkara en að kratarnir sem dauðlangar inn í Evrópusambandið séu viljandi að eyðileggja möguleikana á að þjóðin samþykki inngöngu.  Vilja halda áfram einokun ríkissins á sölu áfengis.

Hef lengi verið á báðum áttum og ekki viljað taka ákvörðun fyrr en samningsdrögin liggja fyrir.  Það breyttist þegar ljóst varð að þessi forpokaða ríkisstjórn ætlar að halda áfram í verslunarhöft með eina vörutegund og þannig halda henni rándýrri og óaðgengilegri um ókomna framtíð.

Til hvers er unnið með inngöngu í ESB ef aukið frelsi í verslun fylgir ekki með?

Amerísk kurteisi

Rak nefið inn í amerískan Kost hans Sullenberger.  Mikið er alltaf notalegt að koma þar inn.  Kaffisopi við innganginn og stundum kexkaka með.  Kanatónlist í hátölurunum.  Meira að segja kúnnarnir eru margir bandarískir eða hafa tengsl þangað í gegnum nám og störf.

Hér er hægt að finna ýmislegt sem ekki fæst í öðrum búðum landsins.  Kannski ekki ódýrasta sjoppan á svæðinu en alltaf með föst tilboð á tilteknum dögum sem þú getur treyst á ef þú mætir nógu snemma áður en draslið klárast.

Varð nefnilega fyrir því og tók dýrari vöru í þeirri trú að hún væri á dagstilboðinu.  Áttaði mig svo nokkrum skrefum frá búðinni og sneri til baka.  Fékk endurgreitt án nokkurra eftirmála.  Frábær þjónusta og skilningur á misskilningi mínum.  Lofaði að hafa augun betur opin næst.

Mæli með Kosti.  Þjónustan er frábær.  Ekta, amerísk kurteisi.

Ambögur

Manneskjur látast og dýr drepast, var manni kennt í gamla daga.  DV skrifar að kötturinn sem Husky hundurinn réðst á hafi látist hjá dýralækni.  Um daginn kom sama blað með þessa fyrirsögn: „Fórnarlamb hrottafenginnar nauðgunar látið.“

Hefði ekki verið nær að segja að kötturinn hafi dáið/drepist og fórnarlambið sé látin?  Er sjálfur enginn íslenskusnillingur en tek þó stundum eftir augljósum ambögum sem skera í augun.

Blár Opal náði ekki að komast til Baku með laginu Stattu upp fyrir sjálfum þér!  Kannski vegna þess að textinn og titillinn eru ein stór málfræðivilla.  Maður stendur með sjálfum sér en ekki upp fyrir.  Hitt er þráðbein þýðing úr amerískri ensku: Stand up for yourself!