Þjóðnýtum sjávarútveginn!

Sjómönnum er hótað uppsögn ef þeir tjá sig um verðlagsmál á fiski.  En laun þeirra eru nátengd söluandvirði aflans sem þeir koma með að landi.  Útgerðarmenn svindla á pappírum til þess að sleppa bæði við gjaldeyrishöft og að greiða sjómönnum það sem þeim ber.

Og mæta svo bara með kjaft í Kastljós.  Er nema von að stormað hafi verið inn í Samherja um daginn.  Þetta lið lætur sér ekki segjast og er með einbeittan brotavilja gegn lögum landsins og starfsmönnum sínum.

Þjóðnýtum sjávarútveginn.  Frumvarp stjórnvalda gengur allt of skammt!

Dimm nóttin nálgast

Stundum held ég að íslenskri þjóð sé ekki viðbjargandi.  Enn myndu rúmlega þrjátíu prósent kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði núna.  Hvað er að ykkur!?  Eruð þið með Alzheimer á háu stigi? Eða svo blinduð af frjálslyndislyginni. Það er enginn frjálslyndur flokkur á Íslandi!

Áður en að hrunflokkarnir komast aftur að kjötkötlunum þarf að tryggja með lögum að fjárfestingar og almenn út- og innlánastarfssemi séu ekki í sama bankanum.  Þarna verður að skilja á milli.  Og ekkert röfl um flókið samspil fjármála bla, bla, bla.

Annars erum við dæmd til að endurtaka hrunið innan fárra ára.

Launaleynd – hvíl í friði!

Veit ekki hvort sú fáviska tíðkast ennþá að launþegi verði að halda launaleynd svo hann/hún fái nú örugglega ekki sanngjörn laun fyrir vinnuframlag sitt.  Hef verið svo lengi frá vinnu svo ég veit ekki.

Veit þó að fljótlega eftir hrunið urðu raddir háværar á móti slíku leynimakki.  Allt átti að vera uppi á borðum.  Af hverju má ég ekki segja öðrum hve mikið (lítið) ég hef í laun og þannig bera mig saman við samstarfsfólk?

Persónulega lít ég á kröfu hvers nýs vinnuveitenda um launaleynd sem hótun um uppsögn í upphafi starfs.  Klaufaleg byrjun á samskiptum sem ættu annars að vera eins og opin bók.  Þeir sem krefjast launaleyndar skammast sín fyrir taxtana sína.