Djammdólgar

Er orðinn enn forhertari í því að fara aldrei aftur einn og óvopnaður niður í miðbæ um helgarnætur.  Einhverjir þrír aumingjar tóku sig til og réðust á náunga fyrir að fara á salernið á barnum Faktory.

Sök fórnarlambsins var að hafa farið í kynleiðréttingu.  Hafði fæðst kona í röngum líkama og skipt um kyn.  Slíkt má ekki.  Það dregur úr karlmennsku okkar hinna sem fæddumst karlar.  Ekki satt?

Eftir barsmíðarnar skreið gaurinn upp í leigubíl til þess eins að fá það framan í sig frá bílstjóranum að transgender væri geðveiki.  Eða svo segir mamma leigarans sem býr í Svíþjóð.  Og hún er „sérfræðingur“.

Sennilega snerust barsmíðarnar ekkert endilega um leiðrétt kyn fórnarlambsins.  Það var bara góð afsökun til að ráðast á hann.  Ætli það hafi ekki spilað meira inn í að hann var einn á ferð.

Svona ofbeldismenn eiga bágt og þjást af minnimáttarkennd vegna einhvers úr æsku eða eru kannski bara fæddir svona.  Fara ekki í bæinn til að skemmta sér heldur til að berja fólk.  Og telja eflaust ekki heldur eftir sér að hópnauðga konum á heimleið úr bænum.

Kannski er aprílgabbið um herskáa femínista ekki svo galin.  Hópur hraustra valkyrja sem rífur eistun undan vesalingum sem herja á konur og kynskiptinga.  Ég myndi kaupa happdrættismiða frá þeim.

Silfruð Kilja Egils

Sit hérna og læt mér leiðast yfir endursýningu á Silfri Egils.  Þvílík andskotans leiðindi.  Væri hægt að svæfa naut með rausinu sem lekur úr liðinu sem er boðið í þáttinn.  Og alltaf sömu smettin.  Í útvarpið með þessi leiðindi.  Sóun á filmu.

Þá er nú Kiljan skárri.  Að minnsta kosti skemmtilegri fastagestir þar og umræðuefnið áhugaverðara.  Hlýtur að vera hægt að röfla um fleira í Silfrinu en ruglið sem fávitarnir niður á þingi eru að klúðra.  Var einu sinni gaman að horfa á sunnudögum.  Kannski var ég bara svona fullur þá?

Hverfisbúðin

Ung hjón eru búin að opna litla hornbúð í Skerjafirðinum í gömlum pylsukofa.  Selja þar helstu nauðsynjar auk þess að vera með grill og pylsupott.  Snilldin ein á þessum síðustu og verstu þegar eldsneytisverð hækkar og hækkar með degi hverjum.

Getur margborgað sig að rölta út í hverfissjoppu sem þessa eftir mjólkurpotti eða rjóma ofan á pönnslurnar, heldur en að bruna á fjölskyldudrekanum í næsta hverfi fyrir hundruðir eða þúsundir króna.  Jafnvel þó aðeins sé smurt ofan á vöruverðið.

Kannski að gömlu hverfisverslanirnar fari að skjóta aftur upp kollinum með síhækkandi verði á olíu?  Hefur enginn lengur efni á því að hreyfa bílinn fyrir eitthvert smáræði sem gleymdist í stórmarkaðnum á leiðinni heim úr vinnu.