Þjóðhátíð 2012

Forsala á Þjóðhátíð hófst í dag.  Uppselt er orðið nú þegar í margar ferðir með Gubbólfi enda keypti Þjóðhátíðarnefnd fullt af ferðum fyrirfram til að selja á dalurinn.is.  Þar er einnig boðið upp á svefnpokapláss.  Bæði kynskipt og fyrir pör í kúlutjaldi.

Rúmir fjórir mánuðir eru til stefnu og fólk flykkist til að festa sér miða og far.  Svona seint í löngum mars á unga fólkið varla mikið af seðlum í veskinu svo smálánafyrirtækin fimm fá nóg af viðskiptum.  Af hverju gat forsalan ekki hafist í byrjun apríl.  Er hérna um eitthvert óopinbert samstarf að ræða?

Að vísu gott og blessað að hægt sé að plana langt fram í tímann á netinu.  Þá er líka hægt að spara sér hátt í fimm þúsund krónur af miðaverði; 13.900 kr. í forsölu í stað 18.900 við hliðið.  Sunnudagurinn er reyndar ekki kominn í sölu enn þá.  Spurning hvað hann mun kosta.

Sykruð alþýða

Smá pæling.  Í rauninni ætti gos að vera selt í Vínbúðinni með sterkustu sortunum og bjór og léttvín í Bónus.  Börn ættu ekki að fá að kaupa þessa sykruðu djöfladrykki.

Alveg örugglega eitt stórt samsæri til þess gert að halda lýðnum niðri með offitu, sykursýki og tannleysi.  Eru ekki alveg örugglega allir tannlæknar Frímúrarar ásamt embættismannaklíkunni?

Ofurskattar eiga betur heima á gosi heldur en áfengi.  Getum alveg eins sturtað geymasýru ofan í blessuð börnin.  Ekki eru orkudrykkirnir eða sykurblönduðu vatnsdrykkirnir skárri.

Pæling um morð

Voðalega finnst mér skrítið þegar íslenskir fjölmiðlar kalla hinn norska Breivik og fransk-alsírska skotmanninn fjöldamorðingja.  Hvað með hermenn?  Eru þeir ekki þá líka fjöldamorðingjar?  Eða eru þeirra dráp á óbreyttum borgurum virðingarverðari því þeir klæðast einkennisbúningi einhvers lands?