Hef verið að dreyma sama drauminn síðustu daga. Sömu aðstæður og sama fólk. Aftur og aftur. Kann ekki við það. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Eitthvað er í vændum. Sennilega slæmt.
Author: Þrasvarður
Ekki reikna með mér!
Síðasta ferming sem mér var boðið í og ég mætti til, var hjá frænda mínum fyrir fjórtán árum síðan. Þá var ég 25 ára á fullu á veiðum um helgar niður í miðbæ með mislitlum árangri.
Lét mig samt hafa það daginn eftir djammið að dröslast til kirkju og veislu alveg skelþunnur. Lítið mál á þeim tíma.
Núna er ég að nálgast fertugt. Einhleypur og barnlaus. Veiðarnar löngu hættar enda kvótinn búinn, netin rifin og tætt og báturinn kominn í úreldingu. Ég er ekkert að fara að mæta í fermingar úr þessu. Ekki reikna með mér!
Cold Turkey
Hef ekki fengið Coke light í tvo daga og er kominn með fráhvarfseinkenni. Finn hvernig eitrið er að fara úr skrokknum. Svaf eins og tröll síðustu nótt og á erfitt með að halda mér vakandi svona koffeinlaus.
Ágætt að losna við bölvað sápuvatnið. Allt í lagi að fá sér stöku dós af og til en ekki marga lítra á dag. Var kominn upp í fjóra lítra þegar verst lét. En var þó búinn að gíra mig niður í einn og hálfan frá áramótum.
Fáranlegt að svala þorstanum með gosi. Eins og vatnið er gott hérna. Vatnið er málið…og bjórinn. :-)